Fjölskyldan, Kór, Ókeypis viðburður, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 30. nóvember - 14:00
Salur
Hörpuhorn
Kvennakór Háskóla Íslands býður til jólatónleika í Hörpuhorni þann 30. nóvember. Sungin verða jólalög úr ýmsum áttum en þó má inni á milli greina þjóðlög af ýmsum toga. Sungið er á íslensku og ensku í þetta skiptið, en kórinn hefur þá sérstöðu að hann skipa kórsöngvarar frá ýmsum menningarheimum.
Tónleikarnir taka um það bil 40 mínútur.
Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!
Kvennakór Háskóla Íslands hefur starfað síðan í desember 2005. Kórinn er skipaður nemendum og fyrrverandi nemendum HÍ ásamt nokkrum söngelskum nemendum annarra skóla. Stjórnandi kórsins er Lilja Margrét Riedel.
Viðburðahaldari
Kvennakór Háskóla Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
0 kr.
Dagskrá
sunnudagur 30. nóvember - 14:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn