Fjölskyldan

Verð
4.950 kr
Tímabil
28. nóvember - 27. desember
Salur
Kaldalón
Karíus og Baktus
Tanntröllin Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um byggingaframkvæmdir í munninum. En þegar þeir gerast of aðgangsharðir verður Jens að fara til tannlæknis sem setur framkvæmdirnar í uppnám og félagarnir þurfa að leita á nýjar slóðir.
Karíus og Baktus er sígilt ævintýri eftir Thorbjörn Egner. Sagan kom fyrst út á bók árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu prakkarar notið mikilla vinsælda meðal barna víða um heiminn.
Nú má sjá þessa sígildu prakkara í fallegu leikhúsi sem sett hefur verið upp í Kaldalóni í Hörpu en það er miklu skemmtilegra að kíkja á þá þar en að hafa þá í munninum á sér. Karíus og Baktus er hress og skemmtileg sýning fyrir alla aldurshópa og er tilvalin fyrir unga krakka sem eru að kynnast töfrum leikhússins í fyrsta skipti.
Sýningin er um 45 mínútur að lengd og án hlés.
Leikarar: Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Leikstjórn: Sara Marti og Agnes Wild
Leikmynd og búningar: Steinunn Marta Önnudóttir
Tónlist: Stefán Örn Gunnlaugsson
Myndband: Steinar Júlíusson
Leikmunir: Eva Björg Harðardóttir
Sýningarkeyrsla: Óðinn Ragnarsson
Framleiðslustjórn: Jón Þ. Kristjansson
Viðburðahaldari
Daldrandi
Miðaverð er sem hér segir
A
4.950 kr.
Dagskrá
laugardagur 28. nóvember - 13:00
laugardagur 28. nóvember - 15:00
laugardagur 5. desember - 13:00
laugardagur 12. desember - 13:00
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu