Börn og Fjölskyldan, Kór

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 25. apríl - 14:00
Salur
Hörpuhorn
Kór Fossvogsskóla kemur fram í Hörpuhorni, laugardaginn 25. apríl, klukkan 14:00 - 14:30. Stjórnandi er Björg Þórsdóttir og píanóleikari Sævar Jóhannsson.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.
-
Kór Fossvogsskóla er á sínu þriðja starfsári en í kórnum syngja um 140 börn frá 2. - 7. bekk sem velja að vera í kór á skólatíma.
Kórinn kemur fram við margvísleg tilefni innan skólans og utan hans; fyrir jól söng kórinn fyrir eldri borgara á Sléttuvegi, söng í Kringlunni þegar jólatréð var tendrað auk þess að koma fram á jólaföndri foreldrafélagsins. Kórinn söng einnig á stóru upplestrarkeppninni og heldur vortónleika í Bústaðakirkju 28. apríl næstkomandi. Kórstjóri er Björg Þórsdóttir, sem er jafnframt tónmenntakennari við skólann.
Á tónleikunum í Hörpuhorni munu söngvarar úr 3. - 7. bekk koma fram og syngja margvísleg lög við undirleik Sævars Helga Jóhannssonar.
Viðburðahaldari
Dægurflugan
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 25. apríl - 14:00
Næstu viðburðir í Hörpu
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.
