Börn og Fjölskyldan, Kór

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 25. apríl - 13:00
Salur
Hörpuhorn
Graduale Liberi og Gradualekór Langholtskirkju koma fram í Hörpuhorni, laugardaginn 25. apríl, klukkan 13:00 - 13:30.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.
--
Gradualekór Langholtskirkju er skipaður 26 stúlkum á aldrinum 12–18 ára og í Graduale Liberi syngja 32 börn á aldrinum 7–11 ára. Kórarnir eru báðir hluti af Kórskóla Langholtskirkju, sem var stofnaður haustið 1991 af Jóni Stefánssyni, þáverandi organista
kirkjunnar. Markmið Kórskólans er að veita börnum og ungmennum vandaða tónlistarmenntun með markvissri þjálfun raddar og heyrnar, með þátttöku í kórstarfi að leiðarljósi.
Meðal nýlegra verkefna kóranna má nefna Dýrin á Fróni á Óperudögum í október 2025 og tónleika með tónlist Magnúsar Eiríkssonar í Langholtskirkju í mars sl. Næsta verkefni
kóranna er Vísnabókin með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg 9. maí, þar sem flutt verða lög úr Vísnabókinni í nýjum útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.
Kórstjórar eru Björg Þórsdóttir og Sunna Karen Einarsdóttir, og píanóleikari er Sævar Helgi Jóhannsson.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 25. apríl - 13:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu