29. júní 2021

Hnoss opnar í Hörpu

„Hnoss“ er nafn á nýjum veitingastað sem mun opna á jarðhæð Hörpu rétt fyrir Menningarnótt. Hugmyndafræðin á bak við Hnoss er að skapa vettvang fyrir matarmenningu sem slær í takt við Hörpu.

„Hnoss“ er nafn á nýjum veitingastað sem mun opna á jarðhæð Hörpu rétt fyrir Menningarnótt.

Auglýst var eftir nýjum rekstraraðilum fyrir veitingarýmið á jarðhæð hússins á síðastliðnu ári og hefur Harpa náð samkomulagi við veitingafólkið Stefán Viðarsson og Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur. En Stefán hefur rekið matstofu Marel Bistro Blue undanfarin ár með Fanneyju Dóru sér við hlið. Fanney Dóra Sigurjónsdóttir var áður yfirkokkur á Skál sem hlaut viðurkenninguna Bib Gourmand Michelin guide. Fanney hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2017 og verið stjórnarmaður og varaforseti Klúbbs matreiðslumanna frá árinu 2018. Framkvæmdastjóri Hnoss er Þórunn Björg Marinósdóttir. Hugmyndafræðin á bak við Hnoss er að skapa vettvang fyrir matarmenningu sem slær í takt við Hörpu. Mikil áhersla verður lögð á ferskt hráefni og gæði en markmiðið er að opna svæðið og gera það aðgengilegt fyrir gesti Hörpu og fyrir matargesti. Áform eru um að nýta vel útisvæðið á jarðhæðinni og tengja þannig veitingastaðinn við menninguna við höfnina og nærliggjandi svæði. Fyrirhugað er að opna svalirnar meðfram Hörpu og skapa lifandi svæði þar verður lögð áhersla á hraða þjónustu.

,,Það er mikið fagnaðarefni að fá þetta framúrskarandi veitingafólk Stefán Viðarsson og Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur, til að reka nýjan veitingastað á jarðhæð Hörpu. Hnoss verður ferskur og spennandi staður sem við erum fullviss um að muni endurspegla vel fjölbreytilegt lífið í húsinu. Við erum að gera skemmtilegar breytingar á húsnæðinu og Hnoss mun einnig tengjast vel við nýjar gönguleiðir að Hörpu um Reykjastræti og Bryggjugötu. Það er því að verða til nýtt miðborgarhjarta í kringum Hörpu sem býr til frábært umhverfi fyrir nýjan veitingastað,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að hreiðra um okkur í fallegu Hörpu og útbúa mat þar sem bragð, áferð og upplifun spilar stóran sess í gegnum grænmetismiðaða rétti okkar í bland við hágæða íslenskan fisk og kjöt. Á kvöldin munum við bjóða upp á a la carte matseðil og fjölbreyttan vínseðil við hæfi. Markmiðið er að tengja Hnoss við viðburði hússins þar sem gestir geta kíkt í mat fyrir sýningu, en einnig í drykk og nasl eftir sýningu. Von okkar er að fólk vilji koma og upplifa hvort sem það er að degi til eða á kvöldin einnig ætlum við að leggja mikið upp úr dögurðarhlaðborði um helgar, það verður algjört hnossgæti,“ segir Fanney Dóra Sigurjónsdóttir veitingakona.

Fréttir