27. október 2026
Loftslagsdagurinn í Hörpu – fyrsti Svansvottaði viðburður Íslands og sá áttundi í heiminum
Loftslagsdagurinn 2026 markar tímamót í íslensku viðburðahaldi og í viðburðarhaldi Hörpu, en hann er fyrsti viðburðurinn á Íslandi til að hljóta Svansvottun og aðeins sá áttundi í heiminum. Viðburðurinn fer fram í Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 28. október, en Harpa er eina ráðstefnuhúsið á Íslandi með Svansvottun.

Sjálfbærni í framkvæmd
Á Loftslagsdeginum verður lögð áhersla á lífrænar veitingar og grænmetis- og grænkerarétti, dregið úr matarsóun og einnota borðbúnaði sleppt. Prentuðu kynningarefni verður haldið í lágmarki, skreytingar endurnýttar og notast við orkusparandi búnað.
Gestum býðst jafnframt að nýta rafskutlur og rafmagnsbíla frá Hopp sér að kostnaðarlausu til að ferðast til og frá Hörpu. Með því er leitast við að auðvelda þátttakendum að velja umhverfisvænni ferðamáta.
Harpa leggur grunn að sjálfbærara viðburðahaldi
Árið 2022 hlaut Harpa Svansvottun. Vottunin er mikilvægur hluti af umhverfisstarfi hússins og endurspeglar markvissa vinnu við að draga úr umhverfisáhrifum ráðstefnu- og viðburðahalds.
Svansvottun Loftslagsdagsins er því ánægjulegt framhald og sýnir hvernig viðburðarhaldarar geta byggt á þeim grunni sem þegar hefur verið lagður í Hörpu og tekið sjálfir virkan þátt í að draga úr umhverfisáhrifum viðburða sinna.
Loftslagsmál og öryggi í brennidepli
Loftslagsdagurinn er kjörinn vettvangur fyrir almenning, atvinnulíf, stjórnvöld og vísindasamfélagið til að ræða stöðu og áskoranir í loftslagsmálum.
Þema dagsins í ár er öryggi og loftslagsmál, þar sem meðal annars verður fjallað um tengsl loftslagsbreytinga við samfélagsöryggi, fæðuöryggi og orkuöryggi.
Dagskrá og skráning á loftslagsdagurinn.is (https://loftslagsdagurinn.is).