7. október 2026

Anne Sofie von Otter bætir við tónleikum í Hörpu

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við öðrum tónleikum með hinni heimsþekktu mezzósópransöngkonu Anne Sofie von Otter í Norðurljósum í Hörpu fimmtudaginn 10. desember.

Black and white portrait of a blonde woman smiling.

Tónleikar Anne Sofie í Hörpu seldust hratt upp svo nú gefst fleiri tónleikagestum tækifæri til að upplifa Anne Sofie von Otter þegar hún kemur fram í Hörpu í fyrsta sinn. Bætt hefur verið tónleikum klukkan 18, fimmtudaginn 10.desember, og mun almenn miðasala hefjast föstudaginn 9. október klukkan 9.

Með henni á sviðinu verða Bengt Forsberg píanóleikari og Fabian Fredriksson gítarleikari, auk þess sem Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópransöngkona kemur fram sem sérstakur gestur.

Tónleikarnir verða með sannkölluðu hátíðaryfirbragði þar sem sígild jólatónlist fléttast saman við sönglög og tónlist frá ólíkum tímum. Á efnisskránni verða meðal annars verk eftir Franz Schubert, Hugo Wolf, Jean Sibelius, J. S. Bach, Gabriel Fauré, Maurice Ravel og Arvo Pärt.

Tónleikarnir marka jafnframt upphaf Ópus Reykjavík, nýrrar listviðburðaraðar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur, en markmið hennar er meðal annars að stuðla að skapandi samstarfi framúrskarandi alþjóðlegra listamanna og íslenskrar listasenu. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Ópus Reykjavík og Hörpu.

Anne Sofie von Otter

Anne Sofie von Otter er ein fjölhæfasta og dáðasta söngkona sinnar kynslóðar og hefur verið í fremstu röð alþjóðlegs tónlistarlífs í fjóra áratugi. Hún hefur sungið í virtustu óperu- og tónleikahúsum heims og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir túlkun sína.

Ferill hennar spannar óvenju vítt svið og auk klassískrar tónlistar hefur hún unnið með listafólki á borð við Elvis Costello, Brad Mehldau og Rufus Wainwright. Hún er jafnframt einn mest hljóðritaði söngvari samtímans og hefur sent frá sér yfir hundrað hljóðrit.

Von Otter hefur alla tíð lagt mikla áherslu á samtímatónlist og samstarf við tónskáld. Sumarið 2026 fór hún með eitt aðalhlutverka í Passion of the Common Man eftir Daníel Bjarnason, sem heimsfrumflutt var á Bregenzer Festspiele í Austurríki.

Ópus Reykjavík

Tónleikarnir eru þeir fyrstu í Ópus Reykjavík, nýrri listviðburðaröð Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur. Álfheiður Erla er margverðlaunuð sópransöngkona sem komið hefur fram í mörgum af fremstu óperu- og tónleikahúsum Evrópu, meðal annars Staatsoper Berlin, Theater Basel, Elbphilharmonie, Concertgebouw í Amsterdam og Philharmonie de Paris. Hún var valin ECHO Rising Star fyrir hönd Hörpu veturinn 2025–2026.

„Anne Sofie hefur verið mér fyrirmynd allt frá því ég hóf söngnám. Forvitni hennar, einlægni og raddfegurð hafa haft djúp áhrif á mig og mótað mig sem söngkonu og listamann. Að fá nú að bjóða hana velkomna til Reykjavíkur og syngja með henni hefur því sérstaka merkingu fyrir mig. Ég gæti ekki hugsað mér betri byrjun fyrir Ópus Reykjavík.“

- Álfheiður Erla Guðmundsdóttir

Eins og áður sagði hefst miðasala á tónleikana föstudaginn 9. október kl. 21:00.

Nánari upplýsingar hér.

Fréttir