14. október 2026
Auglýst eftir styrkjum til tónleikahalds í Hörpu árið 2027
Stjórn Styrktarsjóðsins auglýsir eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu á árinu 2027.

Markmið styrkjanna er að styðja við tónleikahald í Hörpu og skapa tækifæri fyrir fjölbreytta tónlistarviðburði í húsinu.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 9. nóvember 2026. Stjórn sjóðsins fer yfir umsóknir að loknum umsóknarfresti og verður úthlutað úr sjóðnum í desember.
Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og umsóknarferlið má finna HÉR
