14. maí 2026

ECHO Rising Stars í fyrsta sinn í Hörpu

Snemma í maí varð Harpa í fyrsta sinn hluti af tónleikaferðalagi ungs tónlistarfólks sem kemur fram í nokkrum af helstu tónleikasölum Evrópu.

Woman singing loudly on a red-lit stage next to a piano.

Tónlistarhátíðin ECHO Rising Stars, sem er samstarfsverkefni European Concert Hall Organization eða ECHO, fór fram í Norðurljósum dagana 9. og 10. maí en þar gafst íslenskum áheyrendum tækifæri á að kynnast framúrskarandi tónlistafólki frá ólíkum Evrópulöndum sem er að móta sína rödd á alþjóðavettvangi.

Á tveimur dögum fylltust Norðurljós af fjölbreyttum hljóðheimi þegar fram komu saxófónkvartettinn MAAT frá Portúgal, píanóleikarinn Giorgi Gigashvili frá Georgíu, austuríski sellóleikarinn Valerie Fritz og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópransöngkona ásamt píanóleikaranum Kunal Lahiry. Dagskráin bar með sér þá breidd sem einkennir ECHO Rising Stars, þar sem ný tónlist, klassísk hefð og persónuleg nálgun ungra flytjenda mætast.

Þátttaka Hörpu í verkefninu markar nýjan kafla í alþjóðlegu samstarfi hússins. ECHO Rising Stars hefur það að markmiði að styðja við framúrskarandi ungt tónlistarfólk á uppleið og gefa þeim tækifæri til að koma fram í mörgum af bestu tónlistarhúsum Evrópu.

Með hátíðinni í Norðurljósum bættist Harpa í hóp tónlistarhúsa sem kynnir listafólk framtíðarinnar fyrir áheyrendum sínum. Helgin var því ekki aðeins röð tónleika heldur fyrsta skref Hörpu inn í verkefni sem tengir húsið enn sterkar við lifandi samtal evrópsks tónlistarlífs. Þess má einnig geta að til viðbótar við tónleika í Hörpu kom tónlistarfólkið allt fram á tónleikum og viðburðum sem fóru fram víðs vegar um höfuðborgarsvæðið í samstarfi við Hennar rödd, Hrafnistu Laugarási, Vinnumálastofnun og ÖBÍ réttindasamtök. 

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá öllum fernum tónleikunum sem fram fóru í Norðurljósum um helgina. Harpa þakkar tónlistafólkinu fyrir komuna og óskar þeim alls hins besta á áframhaldandi tónleikaferðalagi ECHO Rising Stars um Evrópu.

Fréttir