Jazz og blús, Tónlist

Verð
5.200 kr
Tímabil
30. júní - 1. júlí
Salur
Björtuloft
Haukur Gröndal, saxófónn, klarinett og flauta
Ólafur Jónsson, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Ingi Bjarni Skúlason, píanó/hljómborð
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Erik Qvick, trommur og slagverk
Viva Hermeto! er ný og spennandi tónleikadagskrá sem bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson stendur fyrir. Um er að ræða 6 manna hljómsveit sem leikur m.a. tónlist brasilíska tónskáldsins Hermeto Pascoal en hann er nýfallinn frá, þann 13. september síðastliðinn, 89 ára að aldri. Markmiðið er þó að fagna lífi þessa merka tónlistarmanns en hann hefði orðið 90 ára þann 22. júní 2026. Tónlistinni má lýsa sem nútímalegri brasilískri tónlist sem blandar saman akústískum sóló hljóðfærum og rafmagnaðri hrynsveit. Á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra stíla, m.a. samba, choro, baião, maracatu, marcha og frevo. Allar útsetningar gerði bandaríski gítarleikarinn og kennarinn Richard Boukas en það var hann sem kynnti Sigmari fyrir tónlist Hermeto Pascoal þegar hann var í námi við The New School í New York árin 2013-2016.
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir
A
5.200 kr.
A
5.200 kr.
Dagskrá
þriðjudagur 30. júní - 20:00
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Næstu viðburðir í Hörpu