Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist
Verð
2.990 - 10.900 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 4. júní - 19:30
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Daníel Bjarnason
Gestgjafi og einleikari á selló: Hildur Guðnadóttir
Efnisskrá
Efnisskrá kynnt síðar
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listahátíð í Reykjavík kynna heillandi kvöldstund með tónskáldinu Hildi Guðnadóttur, þar sem brugðið er upp myndum af starfi hennar á síðustu árum. Hildur er eitt fremsta kvikmyndatónskáld samtímans og margverðlaunuð fyrir störf sín, hlaut til dæmis Emmy- og Grammyverðlaun árið 2019 fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir tónlistina við kvikmyndina Joker. Hér leiðir listakonan sjálf dagskrá þar sem hún segir frá verkum sínum, áhrifavöldum og glímunni við að styrkja frásögn kvikmyndarinnar með áhrifamikilli tónlist. Efnisskráin er samsett af tónlist Hildar sjálfrar, t.d. úr kvikmyndunum Joker, Tár og Haunting in Venice. Einnig verður flutt tónlist sem haft hefur mikil áhrif á Hildi í gegnum tíðina, m.a. úr smiðju Arvo Pärt, Ryuichi Sakamoto, Mika Levi, Kaija Saariaho og Alvin Lucier.
Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.700 kr.
B
7.200 kr.
C
5.200 kr.
D
2.990 kr.
X
10.900 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 4. júní - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.
Næstu viðburðir í Eldborg