Ókeypis viðburður

Event poster

Lista­manna­spjall við Maat-saxó­fón­kvart­ettinn

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 9. maí - 18:30

Salur

Framhús

Boðið verður upp á spjall við portúgalska Maat-saxófónkvartettinn að loknum tónleikum þeirra á ECHO Rising Stars tónlistarhátíðinni í Norðurljósum.

Maat-saxófónkvartettinn hefur verið á ferð og flugi um evrópsk tónleikahús undanfarna mánuði en þau eru í hópi tónlistarhópa eða sólista sem voru valin til að koma fram í ECHO Rising Stars tónleikaröðinni veturinn 2025 - 2026.

Kvartettinn hefur vakið mikla athygli fyrir afar frísklegt og spennandi verkefnaval og yfirburða tök á hljóðfærunum sínum. Þau hafa unnið mikið með listafólki úr ólíkum áttum og lagt áherslu á nýsköpun í verkefnavali en fjölmörg tónskáld hafa unnið náið með Maat-kvartettnum.

Spjallað verður við fjórmenningana vítt og breitt um tónleikaferðalagið í vetur, kammertónlist á 21.öld, saxófóninn í samtíð og fortíð og margt fleira.

Spjallið fer fram á 2.hæð, fyrir framan Eldborg og hefst kl. 18:30.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Spjallið fer fram í tilefni af ECHO Rising Stars tónleikaröðinni sem fram fer í Hörpu 9. - 10. maí.

Laugardagur, 9.maí
Kl. 17
Maat Saxófónkvartett

Kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó

Sunnudagur, 10.maí
Kl. 17
Valerie Fritz

Kl. 20
Álfheiður Erla og Kunal Lahiry

Verð á staka tónleika er 5000 krónur:

Viðburðahaldari

Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

laugardagur 9. maí - 18:30