Rising Stars, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist

Event poster

Rising Stars | Giorgi Gigashvili, píanó

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

5.000 kr

Næsti viðburður

laugardagur 9. maí - 20:00

Salur

Norðurljós

Georgíski píanóleikarinn Giorgi Gigashili býður upp á undurfallega og litríka efnisskrá í Norðurljósum að kvöldi laugardags, á Rising Stars tónlistarhátíðinni í Hörpu þar sem hann flytur sónötur og ástsæl einleiksverk eftir Domenico Scarlatti, Fréderic Chopin, Lily Boulanger og Maurice Ravel auk glænýs verks eftir samlöndu tónskáldsins, georgíska tónskáldið Natalie Beridze, samið sérstaklega fyrir Gigashvili.

EFNISSKRÁ

Domenico Scarlatti (1685 - 1757)
Sónata í C-dúr K487
Sónata í D-dúr K29
Sónata í A-dúr K113

Frédéric Chopin (1810 - 1849)
Ballaða nr. 4 í f-moll ópus 52

Natalie Beridze (1979)
Holy Atoms fyrir píanó (2025)

Lily Boulanger (1893 - 1918)
Trois Morceaux pour piano
1. D'un vieux Jardin
2. D'un jardin clair

Maurice Ravel (1875 - 1937)
Miroirs

-

Giorgi Gigashvili er fæddur í Tbilisi í Georgíu árið 2000 og á að baki fjölbreyttan tónlistarferil sem píanóeinleikari og popptónlistarmaður. Hann vakti verðskuldaða athygli árið 2019 þegar hann bar sigur úr býtum í Alþjóðlegu píanókeppninni í Vigo á Spáni þar sem hin heimskunna Martha Argerich var formaður dómnefndar. Hann hefur hlotið fjölmörg fleiri verðlaun og viðurkenningar, bæði sem einleikari og á sviði kammertónlistar.

Gigashvili hefur gefið út rómaðar plötur hjá Alpha Classics og leikur með fiðluleikaranum Lisu Batiashvili á plötu sem Deutsche Grammophone gaf út árið 2022. 

Samhliða blómlegum einleikaraferli sinnir Gigashvili verkefnum á sviði popp- og þjóðlagatónlistar. Hann er einn þriggja meðlima í hljómsveitinni Tsduneba sem flytur tónlist sem er innblásin af georgískum þjóðlögum og starfar jafnframt með söngkonunni Nini Nutsubidze þar sem þau blanda georgískri þjóðlagatónlist saman við tilraunakennda raftónlist og klassísk píanóeinleiksverk.

Tónleikaárið 2025 – 2026 verður önnum hlaðið hjá Gigashvili en hann kemur fram í virtum tónleikahúsum víðs vegar um Evrópu og í Norður-Ameríku, sem einleikari og kammertónlistarmaður, meðal annars í Barbican í London, Elbphilharmonie í Hamborg, Concertgebouw í Amsterdam og í Carnegie Hall í New York.

Gigashvili er tilnefndur sem Rising Stars tónlistarmaður af Konzerthaus Dortmund, Kölner Philharmonie, Philharmonie Luxembourg og NOSPR Katowice.

-

Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. Rising Stars-verkefnið er margþætt; það veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu og veitir jafnframt ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa. Verkefnið styður við nýsköpun en þeir hópar og einstaklingar sem valdir eru til þátttöku í Rising Stars panta tónsmíð sem er flutt er á öllum tónleikum viðkomandi. Samhliða tónleikahaldi tekur unga tónlistarfólkið þátt í samfélagslegum tónlistarverkefnum sem lúta að miðlun, kennslu og/eða viðburðahaldi, gjarnan utan hins hefðbundna tónleikasalar en verkefnin eru ákveðin í samstarfi við viðkomandi tónlistarhús.

Um 110 tónleikar fara árlega fram á vegum Rising Stars. Á meðal tónlistarfólks sem komið hefur fram undir merkjum Rising Stars eru fiðluleikararnir Patricia Kopatchinskaja, Renaud Capuçon og Janine Jansen, píanóleikararnir Khatia Buniatishvili og Igor Levit, sellóleikarinn Kian Soltani og strengjakvartettarnir Quarteto Casals og Belcea Quartet.


ECHO, samtök evrópskra tónleikahúsa, voru stofnuð árið 1991 en í samtökunum eru nú 23 tónleikahús í 14 Evrópulöndum.  Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum, alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið sem og frumsköpun og stuðning við ungt listafólk.

-

RISING STARS TÓNLISTARHÁTÍÐIN Í HÖRPU
9. - 10. maí 2026 í Norðurljósum

Laugardagur, 9. maí kl. 17
Maat saxófónkvartettinn: Blackbird

Laugardagur, 9. maí kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó

Sunnudagur, 10. maí kl. 17
Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn

Sunnudagur, 10. maí kl. 20
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lady Lazarus

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

5.000 kr.

Dagskrá

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Næstu viðburðir í Norðurljósum