Börn og Fjölskyldan, Kór

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 25. apríl - 16:00
Salur
Hörpuhorn
Skólakór Kársness syngur í Hörpuhorni, laugardaginn 25. apríl kl. 16:00 - 16:30 undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og Þóru Marteinsdóttur. Efnisskráin inniheldur fjölbreyttar þjóðlagaútsetningar og dægurperlur.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.
-
Skólakór Kársness var stofnaður árið 1976 og hefur frá upphafi spilað stóran part í skólastarfi Kársnesskóla. Stjórnandi kórsins til 40 ára var Þórunn Björnsdóttir en árið 2016 tók Álfheiður Björgvinsdóttir við keflinu. Þóra Marteinsdóttir bættist í hópinn árið 2017 sem meðstjórnandi yngri barnanna. Allir nemendur Kársnesskóla koma að kórstarfinu á sínum námsferli en allir krakkar á aldrinum 6-12 ára eru í kór og telur hópurinn á unglingastigi um 40 nemendur. Á hverju ári eru því yfir 500 börn í kór í Kársnesskóla og sönghefðin rík. Skólakór Kársness tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum, allt frá skólasamkomum til stærri verkefna, eins og verkefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Jólagestum Björgvins og fleirum.
Framkoma kórsins hefur vakið lukku á erlendri grundu og er hann þekktur fyrir gáskafulla framkomu. Það hefur verið markmið kórsins að kynna íslenska tónlist hérlendis sem erlendis og hafa mörg verk verið samin sérstaklega fyrir kórinn. Síðustu áratugi hefur Skólakór Kársness farið víða um heim og tekið þátt í kóramótum og menningarhátíðum fyrir Íslands hönd. Kórinn er á leið í æfinga- og tónleikaferðalag til Lúxemburgar á næstu dögum.
Viðburðahaldari
Dægurflugan
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 25. apríl - 16:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Næstu viðburðir í Hörpu