9. febrúar 2026

Vettvangur fyrir ungt tónlistarfólk í fremstu röð

Tónleikaröðin Velkomin heim verður haldin sumarið 2026 í níunda skipti. Tónleikaröðin er orðinn árviss liður í sumartónleikahaldi Hörpu en um er að ræða samstarfsverkefni Hörpu og F.Í.T. sem er klassísk deild FÍH. Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 1. mars 2026.

Black and white profile of a cellist playing with closed eyes and flowing hair.

Tónleikarnir fara að öllu jöfnu fram í Hörpuhorni yfir hásumarið og hafa notið mikilla vinsælda. Markmiðið með tónleikunum er að veita ungu tónlistarfólki úr klassíska og rytmíska geiranum, sem hefur stundað framhaldsnám erlendis, vettvang og tækifæri til að kynna sig í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Á meðal tónlistarfólks sem hefur komið fram í tónleikaröðinni undanfarin ár eru Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóluleikari, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, sellóleikari, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, mezzósópran, Sigríður Hjördís Önnudóttir, flautuleikari, Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðluleikari, Sólveig Steinþórsdóttir, fiðluleikari, Tumi Torfason, trompettleikari og Vera Hjördís Matsdóttir, sóparnsöngkona.

FÍT heldur utan um skipulag tónleikaraðarinnar og kallar eftir umsóknum fyrir tónleikaröð sumarsins.

Ungt tónlistarfólk sem er að ljúka námi er hvatt til að sækja um með því að senda ferilsskrá og drög að efnisskrá á fiston@fih.is. Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 1. mars 2026.

Nánari upplýsingar.

Fréttir