28. mars 2023

Korda Samfónía

er óhefðbundnasta hljómsveit landsins.

Korda Samfónía er óhefðbundnasta hljómsveit landsins þar sem saman koma 35 einstaklingar á aldrinum 20-70+ ára á ólíkum stöðum í lífinu og með ólíkar sögur að baki með það að markmiði að vinna saman að sköpun nýrrar tónlistar.

Meðlimir Kordu Samfóníu koma úr hinum ýmsu áttum þjóðfélagsins. Þar er að finna sprenglært og þaulreynt starfandi tónlistarfólk sem og nemendur úr Listaháskóla Íslands, sjálfmenntað tónlistarfólk og fólk sem aldrei hefur áður lagt stund á tónlist. en einnig fólk sem orðið hefur fyrir áföllum og er mislangt komið í endurhæfingaferli sem stutt er af starfsendurhæfingastöðvum um allt land. Allar raddir eru jafnréttháar og útkoman er stórkostleg!

Hljóðfæraskipan er mjög fjölbreytt en þar er að finna öfluga rhythmasveit með tveimur trommusettum, átta slagverksleikurum, tveimur bassaleikurum, fjórum gítarleikurum, fjórum hljómborðsleikurum og tölvu, symfóníska sveit sem skipuð er strengjum og blásurum og tólf manna kór.

Þó einungis séu tæp tvö ár liðin frá stofnun hefur hljómsveitin þegar gefið út sína fyrstu plötu, RÚV hefur sýnt heimildarþátt um hljómsveitina og meðlimi hennar og debut tónleikar hljómsveitarinnar í Eldborg 21. maí 2021 voru tilnefndir til Íslensku Tónlistarverðlaunanna sem viðburður ársins.

Hér má hlusta á plötuna og horfa á heimildaþáttinn.

Ég sé þig - plata Korda Samfóníu á Spotify

Ég sé þig- heimildaþáttur á RÚV

Verkefnið er runnið undan rifjum MetamorPhonics, samfélagsmiðuðu fyrirtæki sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, tónlistarkona stýrir í London. En auk starfsendurhæfingarstöðva og Listaháskóla Íslands kemur Tónlistarborgin Reykjavík og Harpa að verkefninu.

Korda Samfónía flytur eingöngu frumsamda tónlist en sú tónlist er öll samin af meðlimum hljómsveitarinnar í sameiningu og strangar reglur eru um að enginn komi með neitt sem áður hefur verið undirbúið. Þegar litið er til þess að hljómsveitin er skipuð 35 manns verður það að teljast mjög sérstakt.  Að auki hittist hljómsveitin eingöngu í 11 daga ár hvert. Á fyrstu 10 dögunum verður tónlistin til og á þeim ellefta eru haldnir tónleikar!

Á tónleikunum í Eldborg þann 22. maí verða fluttar glænýjar tónsmíðar, auk laga frá fyrri starfsárum hljómsveitarinnar.

Um viðburðinn

Hvers vegna?

Til þess að fólki vegni vel í lífinu þarf það að upplifa sig sem gjaldgenga og virka meðlimi samfélagsins sem hlustað er á. Korda einkennist af jafnrétti, vingjarnlegu, stuðningsríku og skapandi andrúmslofti þar sem fólk vinnur saman, skapar, lærir, styrkist og vex. Umhverfið er öruggt og fólk er hvatt til þess að taka áhættu, prófa eitthvað nýtt og víkka þægindarammann. Mikill metnaður er lagður í listrænt gildi tónlistarinnar, sem gerir þátttakendum kleift að vera stoltir yfir því sem þeir áorkuðu og vita að þeirra list eigi erindi til áhorfenda.

Í Kordu Samfóníu skapast einstakt, opið og aðgengilegt umhverfi til tónsköpunar, fyrir tónlistarnemendur á háskólastigi og fólk sem er að byggja líf sitt upp á ný eftir ýmiskonar áföll.

Tónlist til betra lífs og farsælla samfélags

Fréttir