Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Chamayou leikur Ravel - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00

Verð

3.100 - 11.500 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 10. september - 19:30

Salur

Eldborg

Nýr staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, píanóleikarinn Bertrand Chamayou og sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn, Barbara Hannigan, verða í brennidepli á þessum fjölbreyttu tónleikum sem óneitanlega hafa sterkt franskt yfirbragð. Chamayou leikur tvö tónverk eftir samlanda sína frá Frakklandi sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum litbrigðum. Söngur framandi fugla Ameríku og Asíu varð Olivier Messiaen að innblæstri í litskrúðugu verki fyrir píanó, blásara og slagverk á meðan Ravel hugsaði fyrst og fremst um að skrifa léttan og skemmtilegan píanókonsert þar sem einleikarinn fengi að glansa. Tónskáldið sótti þar innblástur í þjóðtónlist forfeðra sinna í Baskalandi og töfrar fram tápmikil stef og einn fegursta hæga þátt píanóbókmenntanna. Ljóð Arthurs Rimbaud voru kveikjan að tónverki Benjamins Britten, Les Illuminations. Þau boða okkur að stórborgin sé að minnsta kosti jafn villt og frumskógurinn! Öldur sem brotna við ströndina, fjörugar skrúðgöngur og töfrandi ljós sem lýsa dansandi elskendum í kvöldhúminu. Barbara Hannigan og strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytja okkur þetta kraftmikla meistaraverk. Í upphafi tónleikanna hljóma atriði úr ballettinum Köngulóarveislunni eftir Albert Roussel, þar sem við kynnumst tælingarmætti köngulóarinnar, harðduglegum maurum og lífshlaupi dægurflugunnar.

Hljómsveitarstjóri og Einsöngvari


Barbara Hannigan

Einleikari
Bertrand Chamayou 

Efnisskrá
Albert Roussel Le Festin De L'araignée / Köngulóarveislan
Olivier Messiaen Oiseaux Exotiques / Framandi Fuglar
Benjamin Britten Les Illuminations
Maurice Ravel Píanókonsert Í G-Dúr



Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir

A

9.300 kr.

B

7.100 kr.

C

5.100 kr.

D

3.100 kr.

X

11.500 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 10. september - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .