Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
4.900 kr
Næsti viðburður
föstudagur 11. september - 18:00
Salur
Norðurljós
Gagnrýnendur hafa vart undan því að lofa píanóleik Bertrands Chamayou. Efnisval hans hefur verið kallað frumlegt og leitandi, leikurinn kraftmikill, tæknilega fullkominn og hrífandi fagur.
Ljóð án orða er leiðarstef þessara tónleika, þar sem öll efnisskráin tengist sönglögum sem orðið hafa tónskáldum innblástur. Smálög Mendelssohns, Ljóð án orða, eru viðeigandi upphaf þessa ferðalags. Þeim fylgir tónlist sem rímar vel við hógvær og innileg lög Mendelssohns, þar á meðal Söngur án (góðra) orða eftir Charles Ives, „Tileinkun“ Schumanns og dreymandi upprifjun Kurtágs á gleymdum rúmenskum jólasálmi. Vangaveltur George Crumbs um sígildan ópus Thelonious Monks ’Round Midnight, í Eine kleine Mitternachtmusik og frjálsleg útsetning Takemitsus á Bítlalaginu Golden Slumbers færa okkur á framandi slóðir. Tónleikunum lýkur svo á hinni glæsilegu Wanderer-fantasíu eftir Franz Schubert þar sem hver hinna fjögurra þátta hefst á tilbrigði við samnefnt sönglag tónskáldsins.
Píanó
Bertrand Chamayou
Efnisskrá
Felix Mendelssohn Lieder Ohne Worte (Úrval Úr Heftum I, Iii Og Vi)
Charles Ives Song Without (Good) Words
John Lennon & Paul Mccartney / Toru Takemitsu Golden Slumbers
Robert Schumann / Franz Liszt Widmung
George Crumb Eine Kleine Mitternachtmusik
György Kurtág Scraps Of A Colinda Melody – Faintly Recollected
Franz Schubert Wanderer Fantasie
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
A
4.900 kr.
Dagskrá
föstudagur 11. september - 18:00
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Næstu viðburðir í Hörpu