Fyrirlestur, Ráðstefna

Event poster

Ómur frá Palestínu | Samtal við Nai Barg­houti

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 18. apríl - 13:00

Salur

Flói

Nai Barghouti, palestínsk söngkona, tónskáld og flautuleikari ræðir stöðu listarinnar í herteknu landi, ýmsar menningarlegar stoðir palestínskrar þjóðarsjálfsmyndar, og hlutverk tónlistar í andspyrnu og varðveislu menningararfs.

Haldið á vegum Palestínuverkefnis Háskóla Íslands í Hörpu, laugardaginn 18. apríl kl. 13:00-14:00. Verið öll velkomin.

Nai hefur vakið heimsathygli fyrir tónlistarflutning sinn þar sem hún blandar saman arabískri tónlist, jazz og spuna.

Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að heyra sýn listamannsins á sköpunarferlið í samhengi við stjórnmál og aðstæður dagsins í dag. Aðgangur ókeypis.

Nai Barghouti kemur fram á tónleikum í Hörpu 17. apríl.

https://www.harpa.is/vidburdir/20971


Viðburðahaldari

Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

laugardagur 18. apríl - 13:00

Flói

Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.

a large room filled with tables and chairs set up for a banquet .