DagskráDagskráDagskráDagskráDagskráDagskrá
Tónleikar — Ráðstefnur — Fundir — Veislur — Salir og rými — Viðburðahaldarar tónlist
TónleikarRáðstefnurFundirVeislurSalir og rýmiViðburðahaldarar tónlist
Um Hörpu — Græn stefna — Styrkir til tónleikahalds — Póstlisti
Um HörpuGræn stefnaStyrkir til tónleikahaldsPóstlisti
Heimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuHeimsókn í HörpuBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergiBóka fundarherbergi
LeitaLeitaLeitaEnglishEnglishEnglish
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
‌
  • Harpa

  • Opnunartímar

  • Austurbakka 2, 101 Reykjavík

  • Sími: 528 5000

  • Miðasala: 528 5050

  • harpa@harpa.is

  • Skráning á póstlista

  • Sækja um starf

  • Íbúar

    • Sinfóníuhljómsveit Íslands
    • Stórsveit Reykjavíkur
    • Maxímús Músíkús
  • Fræðsla

    • Persónuverndarstefna
    • Jafnlaunastefna
    • Miðasöluskilmálar
    • Fyrirvari vegna tölvupósts
    • Vafrakökur
  • Vottanir & viðurkenningar

  • Jafnlaunavottun
  • Jafnvægisvogin
  • Svansvottun
  • Tripadvisor viðurkenningar
  • Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
  • LinkedIn
FacebookInstagramYoutubeLinkedIn

Rokk og popp, Tónlist, Upprásin

Myndefni

Event poster

Upprásin | j. bear & the cubs, Venus Volcanism og Gargan

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.000 kr

Næsti viðburður

þriðjudagur 14. apríl - 20:00

Salur

Kaldalón

Á þessum tónleikum koma fram j. bear & the cubs, Venus Volcanism og Gargan.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Upprásin fer nú fram þriðja árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.

Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

j. bear & the cubs

Hljómsveitin j. bear & the cubs varð til í lok febrúar 2025 og einungis til að spila á Músíktilraunum en þegar boltinn var kominn af stað hætti hann ekki að rúlla. Nú er leiðtogi bandsins á fullu að klára öll lögin sem gleymdust yfir árin og hljómsveitin stefnir á að spila hvar og hvenær sem er til að dreifa góðri orku og boðskap kærleikans sem hljóðar svo: Þú þarft ekki að þjást í einrúmi.

Hljómsveitina skipa Jasper Matthew Bunch, Óðinn Ýmisson, Sigurður Már Gestsson og Sindri Þór Atlason.

Venus Volcanism

Venus Volcanism er listamannsnafn Rena Rasouli en hún er söngkona, tónskáld og hljóðlistakona, ættuð frá Krít í Grikklandi og búsett á Siglufirði.

Hún blandar í fíngerðum og seiðandi verkum sínum meðal annars saman söng, rafhljóðum og vettvangsupptökum en innblástur og yrkisefni sækir hún í náttúru, þjóðlagaarf og heilunarmátt hljóðsins svo eitthvað sé  nefnt. Hún hefur sent frá sér plöturnar Rizitiko (2020) og Tissue (2023), sú síðarnefnda er nokkurs konar persónulegur leiðangur um íslenskt landslag þar sem vettvangsupptökur af eldhræringum, hafstraumum og öðrum náttúruhljóðum fléttast inn í mínímalískan hljóðheim. Hún hefur einnig samið tónlist við danskvikmyndina Ruins Within Ruins. Venus Volcanism hefur komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Danmörku, Grikklandi og á Íslandi, má þar nefna Extreme Chill Festival, Snæfjallahátíð og Into Festival í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Hún er einnig annar helmingur dúettsins V.V.I.A.

Gargan



Gargan skapar fjölbreyttan heim hljóða þar sem heyra
má klarinettlínur, umhverfishljóð, biluð heimilistæki og klassísk
heimilisáhöld, hljóðgervla og raddir. Þær bjóða hlustendum í ferðalag um ólíka
hljóðheima og skoða allan tilfinningaskalann. Í lifandi flutningi gargar
klarínettleikari í gegnum hljóðfærið sitt og við heyrum rafskruð og óhljóð úr
öllum stærðum og gerðum. Tónlistin er bæði hrá og djúp, skipulögð en stjórnlaus
í senn. Tónlistin er frumsamin.

Gargan skipa Bergþóra Kristbergsdóttir og Hulda Ragnhildur
Hjálmarsdóttir.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

2.000 kr.

Dagskrá

þriðjudagur 14. apríl - 20:00

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Kaldalón

Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

an empty auditorium with rows of seats and stairs leading up to the stage .

Næstu viðburðir í Hörpu

Sjá alla viðburði

Engan asa, Einar Áskell

6 sýningar

How to become Icelandic in 60 minutes

20 sýningar

Upprásin | Hoym, Curro Rodríguez og Skurðgoð

27. janúar 2026, 20:00

Crossing Borders kvintett Ásgeirs Ásgeirssonar - Múlinn Jazzklúbbur

28. janúar 2026, 20:00

Setning Myrkra músíkdaga 2026 / Kammerkórinn Huldur

29. janúar 2026, 18:00

Ævintýri Bobba & Engin engin / Nemendur við Hagaskóla

3 sýningar

MacMillan á Myrkum - SInfóníuhljómsveit Íslands

29. janúar 2026, 19:30

Myrkir músíkdagar 2026 : Hátíðarpassi

29. janúar 2026, 19:30