Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist

Event poster

Sköpun heimsins - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 11. júní - kl. 10:00

Verð

2.990 - 10.100 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 16. apríl - 19:30

Salur

Eldborg

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri og einsöngvari: Barbara Hannigan

Efnisskrá
Joseph Haydn Kynning Óreiðunnar úr Sköpuninni
Ruth Crawford Seeger Andante fyrir strengjasveit
Joseph Haydn Sinfónía nr. 64, Tempora Mutantur
György Ligeti Lontano
Richard Strauss Svo mælti Zaraþústra

Sköpun heimsins er yfirskrift þessara tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þar sem Barbara Hannigan fer með tónleikagesti í ferðalag um tíma og rúm með efnisskrá sem spannar rúm 200 ár tónlistarsögunnar. Upphafstónarnir eru sóttir í forleikinn að Sköpuninni eftir Haydn, Kynningu óreiðunnar, sem flæðir inn í hæglátt strengjasveitarverk bandaríska tónskáldsins Ruth Crawford Seeger. Hugleiðingar um flæði tímans halda áfram með sinfóníu Haydns nr. 64 sem ber hina kunnuglegu yfirskrift „Tímarnir breytast“.

Það er sem tíminn standi í stað í hinu kynngimagnaða verki György Ligetis, Lontano. Flöktandi hljóðmassar ljóss og skugga gera þetta dáleiðandi tónverk eitt af hornsteinum hljómsveitarverka á liðinni öld. Tónleikunum lýkur á öðru þekktu tónaljóði, Also sprach Zarathustra, eftir Richard Strauss þar sem tónskáldið veltir heimsgátunni fyrir sér í stórfenglegu tónaljóði þar sem glæsileiki og dulúð takast á.

Barbara Hannigan hefur vakið mikla aðdáun um heim allan undanfarin ár fyrir hljómsveitarstjórn og söng. Hún hlaut meðal annars Grammy-verðlaunin árið 2018 fyrir plötuna Crazy Girl og nú síðast hin virtu Polar-tónlistarverðlaun í maí.

Íslenskir tónleikagestir þekkja Barböru Hannigan en hún hefur nú þegar stjórnað þrennum tónleikum með hjómsveitinni við frábærar undirtektir. Hannigan tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda hljómsveitarinnar haustið 2026.

Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir

A

8.700 kr.

B

6.700 kr.

C

4.900 kr.

D

2.990 kr.

X

10.100 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 16. apríl - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .

Næstu viðburðir í Eldborg