Bíótónleikar, Börn og Fjölskyldan, Fjölskyldan, Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist

Verð
3.500 kr
Næsti viðburður
mánudagur 20. apríl - 19:00
Salur
Kaldalón
Mary Pickford var brautryðjandi á fyrstu árum Hollywood. Hún lék aðalhlutverk í fleiri en tvö hundruð kvikmyndum á ferli sínum og stofnaði síðar United Artist Studios kvikmyndafyrirtækið ásamt Charlie Chaplin. Á þessum kvikmyndatónleikum fáum við að sjá þessar tvær goðsagnir í tveimur mjög ólíkum kvikmyndum. Fyrst verður sýnd hin brjálæðislega Keystone gamanmynd Tango Tangles (1914) þar sem þeir Roscoe "Fatty" Arbuckle og Ford Sterling leika einnig stórar rullur og svo hin eftirminnilega og ljúfa Pollyanna (1919), sem sýnir okkur hvernig má líta lífið björtum augum, sama á hverju gengur. Báðar myndirnar verða fluttar við lifandi tónlistarflutning Miller-Porfiris dúósins.
Myndirnar eru textaðar bæði á íslensku og ensku.
Eldri borgurum býðst að kaupa miðann á kr. 2500 í miðasölu Hörpu.
Áætluð lengd tónleikanna er um 80 mínútur, án hlés.
Viðburðahaldari
Miller-Porfiris Duo
Miðaverð er sem hér segir
A
3.500 kr.
Dagskrá
Kaldalón er salur staðsettur á fyrstu hæð Hörpu, norðan megin í húsinu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónleika, leiksýningar, ráðstefnur, fundi og listviðburði.

Næstu viðburðir í Hörpu