Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist

Event poster

Gleym mér ei | Hádegis­tón­leikar söng­deildar LHÍ í Hörpu­horni

Verð

0 kr

Tímabil

18. febrúar - 25. mars

Salur

Hörpuhorn

Söngnemendur við tónlistardeild Listaháskóla Íslands gleðja gesti með ljúfum hádegistónum í tónleikaröðinni Gleym mér ei sem fer að þessu sinni fram í samstarfi við Hörpu.

Framundan eru þrennir tónleikar á vorönn 2026. Þeir fara allir fram á miðvikudögum kl. 12, í einstökum hljómi Hörpuhorns, á annarri hæð í Hörpu.

Efnisskráin fléttast í kringum fjölbreytt viðfangsefni hverju sinni og meðleikur er í höndum Matthildar Önnu Gísladóttur, píanóleikara.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!

Gleym mér ei | Hádegistónleikar söngdeildar LHÍ vorið 2026

Miðvikudaginn 18. febrúar kl. 12 
Frönsk sönglög

Miðvikudaginn 18. mars kl. 12

Ljóð og aríur

Miðvikudaginn 25. mars kl. 12
Hans og Gréta

Viðburðahaldari

Harpa

Þessi viðburður er ókeypis

Dagskrá

miðvikudagur 18. febrúar - 12:00

miðvikudagur 18. mars - 12:00

miðvikudagur 25. mars - 12:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .

Næstu viðburðir í Hörpu