19. október 2022

Upptakt­urinn hlaut alþjóð­legu verð­launin YAMaw­ards

í flokknum Besta þátttökuverkefnið fyrir ungmenni.

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna sem haldinn er árlega í Hörpu, hlaut í gær alþjóðlegu verðlaunin YAMawards eða The Young Audiences Music Awards sem Besta þátttökuverkefnið fyrir ungmenni. YAM verðlaunin heiðra sköpunargáfu og nýsköpun í tónlistarframleiðslu ungmenna frá öllum heimshornum - frá einleikurum til hljómsveita og allt þar í milli. Viðburðirnir geta verið af ýmsum toga, alls 70 tilnefningar bárust frá 26 löndum og voru verðlaun veitt í sex flokkum.

Verðlaunaafhendingin fór fram í Concertgebouw tónlistarhúsinu í Brugge í Belgíu í gær, þriðjudaginn 18. október 2022. Elfa Lilja Gísladóttir verkefnastjóri Upptaktsins og Ása Briem í tónlistardeild Hörpu tóku við verðlaununum.

Elfa Lilja Gísladóttir, verkefnastjóri Upptaktsins.

„Að hljóta YAM verðlaunin er frábær  viðurkenning fyrir okkur sem að Upptaktinum stöndum. Upptakturinn hefur vaxið og dafnað með öllu því frábæra listafólki sem að verkefninu kemur - að ég tali nú ekki um krakkana sem hafa verið dugleg að senda okkur hugmyndir sínar og treyst okkur til að koma þeim til skila á tónleikum í Hörpu. Þessi verðlaun sýna og sanna hversu dýrmætt það er að leiða saman ungmenni og starfandi listafólk og veita krökkunum brautargengi. Harpa opnar húsið upp á gátt - húsið sem við eigum saman og það er svo frábært“.

,,Upptakturinn er afar mikilvægt verkefni sem Harpa er stolt að leiða. Barnamenning og tengsl barna við tónlist eru áherslumál hjá Hörpu og við myndum fagna því að fjölga samstarfsaðilum meðal sveitarfélaga með það að markmiði að tónsmíðar barna og ungmenna alls staðar af á landinu geti átt möguleika á að vera valdar inn í Upptaktinn. Verðlaun sem þessi eru þakklát viðurkenning og hvatning til þeirra fjölmörgu sem að þessu frábæra verkefni koma,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

Upptakturinn er haldinn á vegum Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss í samstarfi við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV og Listaháskóla Íslands. Í samstarfi við Upptaktinn eru einnig Tónlistarmiðstöð Austurlands, Garðabær, Borgarbyggð, Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær og Menningarfélag Akureyrar. Með Upptaktinum eru ungmenni í 5. – 10. bekk hvött til að semja tónlist og þau sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda Tónsmíðadeildar. Að þessu ferli loknu er hið nýja tónverk flutt á tónleikum og varðveitt með upptöku.

Meira um Upptaktinn

Fréttir