18. janúar 2024

Upprásin tilefnd

til árlegu tónlistarverðlauna The Reykjavik Grapevine.

Nýjasta tónleikaröðin í Hörpu, Upprásin, er tilnefnd til árlegu tónlistarverðlauna The Reykjavik Grapevine í flokknum “Shout Out”, en verðlaunin eru veitt þeim sem eru talin hafa bætt tónlistarheiminn á síðastliðnu ári. 

Við þökkum fyrir tilnefninguna og frábærar viðtökur um leið og við minnum á að næsta tónleikar í Upprásinni fara fram þann 23. janúar þar sem Sjálfshatur, Emma og Krassoff munu stíga á svið. Nánari upplýsingar má finna hér.

Upprásin er á vegum Hörpu í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2. Verkefnið er liður í dagskrárstefnu Hörpu um að styðja við og bæta aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum að Hörpu og auka við fjölbreytni og aðgengi tónlistaráhugafólks að nýrri íslenskri tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.

Skoða frétt á Grapevine

Fréttir