17. apríl 2023, 00:00

Una Torfa, Gugusar og Unnsteinn Manúel

syngja lög eftir ungmenni í Upptaktinum.

upptaktur 23 fjolublar

Upptakturinn er tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna þar sem ungmenni í 5.-10. bekk eru hvött til að semja tónlist og senda inn í keppnina. Þau sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum skapandi tónlistarmiðlunar við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda tónsmíðadeildar Listaháskólans. Að þessu ferli loknu er hið nýja tónverk flutt á tónleikum með atvinnutónlistarfólki og verkin varðveitt með upptöku. Að þessu sinni munu söngvararnir Gugusar, Una Torfa og Unnsteinn Manúel Stefánsson syngja lögin sem á annað borð innihalda söng, en sum laganna eru samin eingöngu fyrir hljóðfæraleik án söngs.

Tónleikar Upptaktsins 2023 fara fram í Norðurljósum þriðjudaginn 18. apríl 2023 kl. 17.00.
Á tónleikunum verða frumflutt fjórtán splunkuný tónverk eftir börn og ungmenni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.

Upptakturinn er á vegum Hörpu í samstarfi við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV og Listaháskóla Íslands. Samstarfsaðilar eru einnig Tónlistarmiðstöð Austurlands, Garðabær, Borgarbyggð, Seltjarnarnesbær, Kópavogsbær og Menningarfélag Akureyrar og tekur Upptakturinn fagnandi á móti fleiri sveitarfélögum sem vilja taka þátt.

Markmið Upptaktsins er að stuðla að tónsköpun ungs fólks með því að hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist og aðstoða þau við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina. Með Upptaktinum er börnum og ungmennum gefið tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Hörpu.

Síðasta haust hlaut Upptakturinn alþjóðlegu verðlaunin YAMawards eða The Young Audiences Music Awards sem besta þátttökuverkefnið fyrir ungmenni.

Ungmennin sem valin voru til þátttöku í Upptaktinum 2023 eru eftirfarandi:

Urður Óliversdóttir
Emilía Guðnadóttir
Iðunn Óliversdóttir
Guðrún Filippía Gísladóttir
Eydís Anna Ingimarsdóttir
Ella Rhayne Guevarra Tomarao
Bergur Tjörvi Bjarnason
Ólafur Sveinn Böðvarsson
Þórey María E. Kolbeins
Magnús Thor Holloway
Stefanía Þórdís Vídalín Áslaugardóttir
Yasna Yousif Mohammed
Jökull Hrafn Jakobsson
Hrafnhildur Ylfa Jónsdóttir
Embla Elmarsdóttir


Hér má sjá [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop sem var sett saman í tilefni 10 ára afmæli Upptaktsins.

Nánari upplýsingar um [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop.

Fréttir