24. desember 2021

Tveir nýir stjórn­endur

Hildur Ottesen tekur við markaðs- og kynningarmálum og Elín Valgerður við mannauðs- og gæðamálum.

Hildur Ottesen hefur tekið við starfi markaðs- og kynningarstjóra Hörpu. Hildur mun hafa umsjón með fjölbreyttum markaðs- og kynningarmálum Hörpu - leiða markaðsráð rekstraraðila, samskipti við innlenda og erlenda fjölmiðla auk þess að vera leiðtogi í stafrænni miðlun og þróun. Hildur hefur víðtæka reynslu af markaðs- og kynningarmálum og kemur frá Arion banka þar sem hún hefur starfað undanfarin 14 ár.

Á starfsferli sínum í Arion banka hefur Hildur komið að fjölbreyttum verkefnum; starfað á samskiptasviði bankans, verið viðburðarstjóri og vörumerkjastjóri. Sem vörumerkjastjóri bankans tók Hildur þátt í að leiða og móta markaðssetningu á stafrænum verkefnum, innleiðingu kerfa fyrir starfsfólk og þróun á útibúaneti. Hildur er með BS gráðu í ferðamálafræði og BA í spænsku og starfaði lengi við ferðaþjónustu erlendis.

image

Elín Valgerður Margrétardóttir hefur verið ráðin í nýtt starf mannauðs- og gæðastjóra Hörpu. Elín leiðir og fer með faglega stefnumótun í mannauðs- og gæðamálum ásamt því að veita ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda í málaflokknum.

Elín hefur starfað í mannauðsmálum í 16 ár og nú síðast sem sérfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þar sem hún sinnti stefnumótun og ráðgjöf til stjórnenda stofnana ríkisins. Elín átti sæti í samninganefnd ríkisins þar sem hennar innkoma í samningagerð var að miklu leyti tengd samspili starfsumhverfismála og líðan starfsfólks. Á sínum starfsferli hefur Elín lagt áherslu á og stutt við mikilvægi góðra og uppbyggilegra samskipta. Elín Valgerður er með BA í ensku og bókmenntafræði, meistaragráðu, annars vegar í mannauðsstjórnun og hins vegar í ritstjórn og útgáfu auk þess að vera markþjálfi.

image

Fréttir