25. ágúst 2022
Styttri opnunartími föstudaginn 26. ágúst
vegna umfangsmikils viðburðar í Hörpu. Nánari upplýsingar.

Vinsamlega athugið að vegna umfangsmikils viðburðar í Hörpu föstudaginn 26. ágúst verður opnunartími hússins og starfsemi rekstraraðila skert.
Harpa og miðsala Hörpu lokar kl. 17:00. Hægt er að kaupa miða á viðburði hér á síðunni.
Veitingastaðirnir Hnoss restaurant og bar á jarðhæð og La Primavera á fjórðu hæð verða lokaðir þennan dag.
Listval og Rammagerðin loka kl. 17:00.
Covidtest.is lokar kl. 16:00 líkt og aðra daga.
Bílahús Hörpu verður opið sem fyrr allan sólarhringinn.
Harpa biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.