9. febrúar 2026
Spennandi tónlistarverkefni fyrir börn í 5. - 10. bekk
Nú stendur yfir leit að nýjum lögum og tónlist fyrir Upptaktinn, einstaklega spennandi tónlistarverkefni sem ætlað er börnum og ungmennum í 5. - 10. bekk. Upptakturinn er samstarfsverkefni Hörpu, Listaháskóla Íslands, RÚV og fjölmargra sveitafélaga um landið.

Hundruð nýrra laga hafa verið flutt á tónleikum Upptaktins í gegnum tíðina þar sem ungt tónlistarfólk hefur stigið sín fyrstu skref á tónlistarsviðinu.
Skilafrestur til og með 22. febrúar
Börn og ungmenni í 5. - 10. bekk geta sent inn lag eða lagahugmynd en umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 22. febrúar. Eftir það fer valnefnd yfir innsend lög en þrettán þeirra eru valin til frekari úrvinnslu eða þróunar af tónsmíðanemendum úr Listaháskóla Íslands ásamt ungu tónskáldunum. Starfandi hljóðfæraleikarar flytja svo tónlistina á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu en tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 22. apríl sem er síðasti vetrardagur.
Nánari upplýsingar má finna á vef Upptaktsins á Hörpu.


