22. febrúar 2022
Sígildir sunnudagar 2022-2023
Harpa auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina

Harpa tónlistar-og ráðstefnuhús auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðina Sígildir sunnudagar veturinn 2022-2023.
Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00 frá september 2022 og fram í miðjan maí 2023. Með röðinni gefst áheyrendum kostur á fyrsta flokks kammertónleikum vikulega í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.
Sem fyrr er skipulag tónleika í höndum tónlistarhópanna sjálfra en Harpa veitir röðinni stuðning með afslætti á salarleigu, kynningu og aðstoð við markaðssetningu á íslensku og ensku, með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2022.
Sækja um