4. júní 2025

Nýtt, ögrandi og ævintýralegt

Hljómsveitin Geneva Ca­merata hef­ur vakið heims­at­hygli fyr­ir að feta nýj­ar leiðir í miðlun klass­ískr­ar tón­list­ar. Hljóm­sveit­in kem­ur fram í fyrsta sinn á Íslandi 14. júní næst­kom­andi Í Eld­borg í Hörpu með magnaða sviðsetn­ingu á fimmtu sin­fón­íu Dmitris Shosta­kovit­sj.

a group of people are dancing on a stage in front of an orchestra .

Hrist upp í göml­um hefðum

Geneva Ca­merata (Kammer­sveit­in í Genf) var stofnuð árið 2013. Sveit­in er skipuð um fimm­tíu framúrsk­ar­andi hljóðfæra­leik­ur­um sem koma víða að og eiga það sam­merkt að vera óhrædd­ir við að feta nýj­ar slóðir í nálg­un sinni við sí­gilda tónlist. Starfið í hljóm­sveit­inni krefst enda víðsýni og for­vitni þar sem áhætt­ur eru tekn­ar og hljóðfæra­leik­ar­arn­ir stíga inn í hlut­verk sem þeir eru alls óvan­ir að tak­ast á við.

Sam­starf sin­fón­íu­hljóm­sveita við aðra list­geira er vel þekkt víða um heim en Geneva Ca­merata stíg­ur skref­inu lengra. Í Revolta, sem fer á svið Eld­borg­ar 14. júní næst­-kom­andi, taka hljóðfæra­leik­ar­arn­ir þátt í sviðsetn­ing­unni með dansi og hreyf­ing­um ásamt fjór­um hipp­hopp­döns­ur­um.

Hljóðfæra­leik­ar­arn­ir spila stand­andi, krjúp­andi, liggj­andi og á fleygi­ferð. Verkið flytja þeir eft­ir minni enda krefst sviðsetn­ing­in þess að þeir séu hreyf­an­leg­ir og ekki háðir nót­um á nótna­púlti. Til verður sýn­ing sem á eng­an sinn líka í hinum sin­fón­íska tón­leika­sal, ófyr­ir­sjá­an­leg, gríðarlega spenn­andi og á köfl­um hættu­leg!

Auk ný­stár­legra sviðsetn­inga á sin­fón­ísk­um verk­um eft­ir tón­skáld svo sem Lully, Moz­art, Beet­ho­ven, Dvorak, Mahler og Shosta­kovit­sj hef­ur Geneva Ca­merata vakið at­hygli fyr­ir ferskt, fjöl­breytt og fjölþjóðlegt efn­is­val á hefðbundn­ari tón­leik­um sín­um.

Hljóm­sveit­in hef­ur starfað með röpp­ur­um og rokk­ur­um, jazz- og raf­tón­listar­fólki og leikið tónlist allt frá miðöld­um og til okk­ar daga þar sem tón­list­ar­hefðir frá ólík­um heims­horn­um eru á dag­skrá en hljóm­sveit­in hef­ur leikið í virt­um tón­leika­söl­um og í óhefðbundn­ari viðburðarým­um víðs veg­ar um heim­inn við frá­bær­ar und­ir­tekt­ir.



Viðbragð lista­manns við of­ríki og of­beldi

Fimmta sin­fón­ía Shosta­kovit­sj, sem Geneva Ca­merata flyt­ur á sviði Eld­borg­ar, var frum­flutt á mikl­um um­brota­tím­um í lífi Shosta­kovit­sj. Tæp­um tveim­ur árum áður hafði Pra­vda, mál­gagn sov­éska komm­ún­ista­flokks­ins, birt for­dæm­ingu á tónlist Shosta­kovit­sj eft­ir að tón­skáldið féll í ónáð hjá Stalín. Í kjöl­farið var Shosta­kovit­sj und­ir stöðugri smá­sjá yf­ir­valda, hon­um gert að draga verk sín til baka og semja tónlist sem þjónaði hags­mun­um rík­is og verka­lýðs: bjarta, upp­byggi­lega og auðskilj­an­lega!

Fimmta sin­fón­í­an var frum­flutt í nóv­em­ber 1937 í Leníngrad við gríðarleg fagnaðarlæti og Shosta­kovit­sj tókst hið ómögu­lega, að vera trúr sinni list­rænu köll­un en kom­ast á sama tíma í gegn­um nál­ar­auga rit­skoðara. Stjórn­völd túlkuðu verkið sem glæsi­lega hetju­hljóm­kviðu um lífið í Sov­ét­ríkj­un­um en litu al­farið fram hjá þeim djúpa harmi sem al­menn­ing­ur skynjaði svo vel þá og all­ar göt­ur síðan. Verkið hef­ur gjarn­an verið sagt eitt áhrifa­mesta andsvar lista­manns við of­ríki og kúg­un, fullt af níst­andi tog­streitu og mót­sögn­um.

Hvað eiga Shosta­kovit­sj og krump­d­ans sam­eig­in­legt?

Nálg­un Geneva Ca­merata við þessa mögnuðu sin­fón­íu Shosta­kovit­sj er frum­leg og í hæsta máta óhefðbund­in þar sem verk­inu er teflt sam­an við krump­d­ans, hipp­hopp dans­stíl sem þróaðist í kring­um árið 2000 í jaðar­sett­um lág­tekju­hverf­um Los Ang­eles-borg­ar. Krump­d­ans ein­kenn­ist af áköf­um og kraft­mikl­um hreyf­ing­um og varð til sem andsvar gegn kynþátta­hyggju og lög­reglu­of­beldi, al­var­legu og viðvar­andi sam­fé­lags­meini í Banda­ríkj­un­um.

Með krump­d­ans­in­um fann dans­ar­inn leið til að tjá reiði og sorg yfir fé­lags­legu órétt­læti og hefja sig upp yfir kring­um­stæður sín­ar á djúp­an og áhrifa­rík­an hátt. Krump er skamm­stöf­un fyr­ir Kingdom Radically Uplift­ing Mig­hty Praise sem vís­ar til þeirr­ar and­legu og trú­ar­legu vídd­ar sem felst í dans­in­um og lyft­ir dans­ar­an­um úr erfiðum kring­um­stæðum, frá ör­birgð, of­beldi og úti­lok­un.

Hliðstæðurn­ar á milli verks Shosta­kovit­sj og krump­d­ans­ins verða því þegar vel er að gáð býsna skýr­ar en bæði sin­fón­í­an og dans­inn spretta fram sem andsvar gegn of­ríki og kúg­un, þá og nú. Upp­setn­ing Geneva Ca­merata á þessu tæp­lega níræða meist­ara­verki Shosta­kovit­sj verður þannig sterk áminn­ing til okk­ar um hvers list­in er megn­ug og hvernig lista­menn ná að búa til óend­an­lega feg­urð og töfra, jafn­vel við óbæri­leg­ar kring­um­stæður.

Nánari upplýsingar um Revolta

Revolta - Listamannaspjall

Á undan sýningunni í Eldborg mun David Greilsammer, hljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi GECA fjalla um sköpunarferlið að baki sýningunni REVOLTA, nýjar leiðir til að nálgast og miðla sígildri tónlist og samruna sinfónískrar tónlistar og hiphop dans svo fátt eitt sé nefnt.

Nánari upplýsingar

Fréttir