21. júní 2021
Nýr vefur Harpa.is í loftið
Nýr vefur er afrakstur samstarfs við hönnunarfyrirtækið Kosmos & Kaos og ráðgjafafyrirtækið Parallel. Mikill metnaður var lagður í hönnunina með upplifun notenda í forgrunni.
Nýr vefur Hörpu er kominn í loftið. Vefurinn er afrakstur samstarfs við hönnunarfyrirtækið Kosmos & Kaos sem sáu um hönnun og útlit fyrir vefinn og ráðgjafafyrirtækið Parallel sem sá um verkefnastýringu. Á nýjum vef er lögð áhersla á að leiðakerfi fyrir notendur sé einfalt og notendavænt, þar sem allt yfirbragð er bæði léttara og aðgengilegra.
Síðan er verkefni í stöðugri þróun með reglulegum endurbótum sem tryggja góða notendaupplifun.