1. mars 2022
Nýr sviðsstjóri Viðskipta- og markaðssviðs
Ásta Ólafsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf sviðsstjóra

Um er að ræða lykilstarf á nýju Viðskipta- og markaðssviði Hörpu tónlistar- og
ráðstefnuhúss. Ásta leiðir viðskiptaþróun, sölu, markaðssókn og þróun tekjuskapandi þjónustu fyrir ferðamenn. Ásta fer fyrir öflugu teymi viðskiptastjóra á vettvangi viðburðahalds, s.s. tónleika, ráðstefna, funda og sýninga og hefur yfirumsjón með markaðs- og kynningarstarfi þar sem áherslan er einkum lögð á margþætta starfsemi í þessu fjölsóttasta viðburðahúsi landsins og að styrkja Hörpu sem alþjóðlegt vörumerki í samkeppni um ráðstefnur og stærri viðburði.
Ásta hefur starfað innan ferðaþjónustunnar í 25 ár og hefur víðtæka þekkingu, reynslu og tengsl á þeim vettvangi. Hún hefur sem stjórnandi leitt uppbyggingu vörumerkja, vöruþróun og markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað til betur borgandi gesta. Ásta starfaði hjá Iceland Travel í 10 ár og stýrði þar m.a. uppbyggingu Nine Worlds, var sölustjóri Nordic Luxury á Íslandi og Norðurlöndunum og sölustjóri hjá The Reykjavik EDITION. Ásta hefur einnig víðtæka reynslu af uppsetningu sýninga og viðburða. Ásta er með BA gráðu í íslensku og fjölmiðlafræði og Diploma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Ásta situr í framkvæmdastjórn Hörpu og hefur þegar hafið störf.