30. ágúst 2023, 00:00

Verðlaunaafhending - Mín Harpa, ljósmyndasamkeppni

Við óskum verðlaunahöfum í Mín Harpa - ljósmyndasamkeppni fyrir ungt fólk innilega til hamingju!

Mín Harpa vinningshafar

Mánudaginn 28. ágúst fór fram afhending verðlauna fyrir sigurmyndirnar í ljósmyndasamkeppninni Mín Harpa.

Fyrstu verðlaun hlaut Katla Líf Drífu-Louisdóttir Kotze (13 ára), önnur verðlaun hlaut Kría Kristjónsdóttir (11 ára) og Menningarnæturverðlaunin hlutu Alma Huld Halldórsdóttir (7 ára) og Kaira Hitrova (11 ára).

Dómnefnd valdi tvær ljósmyndir af þeim 88 sem sendar voru inn í samkeppnina og veitti [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop sigurvegurum glæsileg verðlaun. Gestir Hörpu gátu síðan valið sína uppáhalds mynd af sýningunni og hlutu tvær sérstök Menningarnæturverðlaun í boði [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop.

Ljósmyndasýningin Mín Harpa verður opin til 6. september á jarðhæð Hörpu og hvetjum við alla til að kíkja við og kynnast ljósmyndurum framtíðarinnar!

[@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop

Fréttir