21. september 2021
Miðasala Hörpu flytur í dag
Þriðjudaginn 21. september flytur miðasala Hörpu í nýtt rými á jarðhæð og því verður ekki unnt að afgreiða miða í Hörpu.
Miðasalan er þó að sjálfsögðu opin á vefnum eins og ávallt og er þjónustan hnökralaus. Starfsfólk miðasölu mun svara í síma 528 5050 milli klukkan 12:00 – 16:00 en vegna flutninga getur þjónustan þennan eina dag tekið lengri tíma og biðjum við gesti okkar að sýna því skilning.
Við hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í nýja og glæsilega Gestastofu og miðasölu á jarðhæð Hörpu sem verður opnuð miðvikudaginn 22. september klukkan 10:00.
Velkomin í Hörpu!