27. september 2023, 00:00
Lystsköpun í Hörpu
Framúrskarandi gestgjafi óskast.

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús leitar að metnaðarfullum samstarfsaðila til að reka glæsilegan veitingastað á jarðhæð hússins á nýju ári. Í boði er að taka við rekstri
, sem er núverandi veitingastaður, eða senda inn tilboð um að opna nýjan stað.Harpa er bæði heimssvið og heimavöllur tónlistarinnar, alþjóðlegt ráðstefnuhús og einstakt listaverk sem laðar árlega til sín vel á aðra milljón innlendra og erlendra gesta. Viðburðir í Hörpu eru um 1.200 á ári. Á undanförnum misserum hefur færst mikið líf í næsta nágrenni hússins. Hótel, fjölmennir vinnustaðir, verslanir, veitingastaðir og afþreying á svæðinu í kringum Hörpu stækkar enn frekar markhóp veitingastaðarins.
Hér er einstakt tækifæri fyrir öflugt rekstrar- og veitingafólk sem vill slást í hóp framúrskarandi gestgjafa í Hörpu.
Frestur til að sækja um er til og með 22. október nk.
Fyrirspurnir sendist á gestgjafi@harpa.is.