9. júní 2025
Korda samfónía
Tónlist til betra lífs og farsælla samfélags!

Harpa hefur lagt drög að áframhaldandi samstarfssamning við Korda samfóníu en með samningnum verður hljómsveitinni tryggður tónleikavettvangur í Hörpu næstu þrjú árin.
Korda er stórhljómsveit og eflaust óvenjulegasta hljómsveit landsins, þar sem hljómsveitarmeðlimir mæta til leiks með ólíkar sögur að baki, á mjög mismunandi stöðum í lífinu, með þann sameiginlega tilgang að semja saman og flytja nýja, frumsamda tónlist. Hljómsveitin er samsett af nemendum í tónlistarnámi við Listaháskóla Íslands og einstaklingum í bata eftir lífsbreytandi veikindi og áföll sem sækja þjónustu til, eða hafa lokið endurhæfingu hjá starfsendurhæfingamiðstöðvum víða um land.
Verkefnið er runnið undan rifjum MetamorPhonics, samfélagsmiðuðu fyrirtæki sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, tónlistarkona stýrir í Bretlandi og á Íslandi. Samstarfsaðilar MetamorPhonics á Íslandi eru Listaháskóli Íslands, Tónlistarborgin Reykjavík, Harpa tónlistar og ráðstefnuhús, Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar, MSS Samvinna á Suðurnesjum, Starfsendurhæfing Vesturlands, Starfsendurhæfing Vestfjarða, Starfsendurhæfing Suðurlands og Starfsendurhæfing Austfjarða.
Korda Samfónía er þátttakandi í viðamiklu þriggja ára rannsóknarverkefni fjögurra háskóla í Bretlandi og á Íslandi. Verkefnið ber nafnið Building Bridges Through Collaboration og rannsakar aðferðafræði MetamorPhonics og áhrif verkefnanna á þátttakendur frá heimilislausa samfélaginu, þátttakendur í endurhæfingu og nemendur í háskólanámi. Niðurstöður rannsóknanna verða kynntar á alþjóðlegum ráðstefnum og með fræðagreinum í alþjóðleg fræðarit, ásamt útgáfu á tónlist hljómsveita MetamorPhonics og heimildarmynd um aðferðafræði og listræna framvindu. Listaháskóli Íslands sér um verkefnastjórn en aðrir háskólar verkefnisins eru St John University í York (International Centre for Community Music), Háskólinn á Bifröst og Guildhall School of Music and Drama.
Hvers vegna
Til þess að fólki vegni vel í lífinu, þarf það að upplifa sig sem gjaldgenga, virka meðlimi samfélagsins og að á það sé hlustað. Korda Samfónía einkennist af jafnrétti, vingjarnlegu, stuðningsríku og skapandi andrúmslofti, þar sem fólk vinnur saman, skapar, lærir, styrkist og vex. Umhverfið er öruggt og fólk er hvatt til þess að taka áhættu, prófa eitthvað nýtt og víkka þægindarammann. Mikill metnaður er lagður í listrænt gildi tónlistarinnar, sem gerir þátttakendum kleift að vera stolt yfir því sem þau áorkuðu og vita að þeirra list eigi erindi til áhorfenda. Öllum verkefnum MetamorPhonics er stýrt af faglærðu og færu tónlistarfólki með áralanga reynslu af stjórnun samfélagstengdra tónlistarverkefna.
Styrktaraðliar Kordu Samfóníu eru Heilbrigðisráðuneytið, Félags og húsnæðismálaráðuneytið, Mennta og barnamálaráðuneytið og Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið, Listaháskóli Íslands, Tónlistarborgin Reykjavík og Harpa, tónlistar og ráðstefnuhús, Tónlistarsjóður og VIRK starfsendurhæfing.