12. nóvember 2021
Hraðpróf þarf á alla viðburði í Hörpu
Samkvæmt nýjustu samkomutakmörkunum mega nú 50 manns koma saman í rými en svigrúm verður fyrir 500 manns á viðburðum þar sem hraðprófs er krafist.
Gestir þurfa því að framvísa neikvæðum hraðprófsniðurstöðum fyrir alla viðburði í Hörpu. Niðurstöður hraðprófs mega ekki vera eldri en 48 klst. gamlar.
Starfsstöð fyrir greiningu á Covid-19 með hraðprófum hefur verið opnuð á neðri jarðhæð Hörpu K1 gegnt inngangi úr bílastæðakjallara. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um allar hraðprófsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
Nauðsynlegt er að bóka tíma í hraðpróf.
Harpa hefur ávallt lagt áherslu á ábyrgt viðburðarhald og fylgir í einu og öllu núgildandi reglum og viðmiðum um samkomutakmarkanir.
Miðahafar og gestir Hörpu munu líkt og áður fá allar upplýsingar jafnóðum eftir því sem fram vindur, í góðu samstarfi, og samráði við viðburðahaldara.