5. júní 2025

Hjólateymi Hörpu sigraði í kílómetrakeppni Hjólað í vinnuna 2025

Hjólateymi Hörpu fór með glæsilegan sigur í kílómetrakeppni átaksins Hjólað í vinnuna 2025 og hreppti þar fyrsta sæti í heildarkeppni allra vinnustaða! Þátttakendur úr teymi Hörpu lögðu sig af krafti fram og hjóluðu samtals fleiri kílómetra en nokkurt annað lið í keppninni.

a group of people are posing for a photo and one of them is holding a plaque that says road runner

Verðlaunaafhending fór fram með hátíðlegum hætti í húsakynnum ÍSÍ þann 2. júní. Þar tók hópurinn úr Hörpu við viðurkenningu fyrir frábæran árangur í anda samstöðu, heilbrigðra lífshátta og sjálfbærs ferðamáta. Einnig hlaut Harpa annað sætið í hlutfallskeppninni, þar sem metið er hversu mikið hjólað er miðað við fjölda starfsmanna.

Átakið, sem fór fram dagana 7.–27. maí, hefur um árabil verið fastur liður í vorinu og markar fyrir marga upphaf sumarsins. Hvetjandi andi verkefnisins skilar sér ekki aðeins í aukinni hreyfingu og vellíðan starfsmanna, heldur einnig í jákvæðum áhrifum á starfsanda og samstöðu á vinnustaðnum.

Harpa er stolt af frábæru framtaki starfsfólks Hörpu, sem tók þátt með krafti, gleði og samkennd. Hjólateymið hefur með þessu sýnt fram á að með sameiginlegu átaki má ná glæsilegum árangri – og hafa gaman af í leiðinni.

Fréttir