12. febrúar 2022
Heimssviðið hefst að nýju
Tónleikaröð með ungu tónlistarfólki hvaðanæva að.

Heimssviðið er tónleikaröð á vegum Hörpu þar sem ungt og upprennandi tónlistarfólk er kynnt til leiks. Fram koma nokkrir af bestu hljóðfæraleikurum og söngvurum ungu
kynslóðarinnar, íslenskir sem erlendir. Listamennirnir eru þegar farnir að geta
sér góðs orðs á heimsvísu svo tónlistarunnendur eru hvattir til að fylgjast vel
með.
Tónleikaröðin hófst sl. haust og er hluti af glæsilegri 10 ára afmælisdagskrá Hörpu. Heimssviðið er styrkt af samtökum tónlistarhúsa í Evrópu, ECHO, og er hluti af alþjóðlega
verkefninu Classical Futures. Mörg stærstu tónlistarhús Evrópu koma að verkefninu og má þar til dæmis nefna Elbphilharmonie í Hamburg, Concertgebouw-tónlistarhúsið í Amsterdam, Barbican í London, Tónlistarhúsið í Vín og Fílharmónían í París.
Heimssviðið hefst að nýju miðvikudaginn 16. febrúar með tónleikum
harmónikkusnillingsins
João Barradas
. João Barradas er jafnvígur á ólíkar tegundir tónlistar; klassík, jazz og spunatónlist og hefur unnið velflestar stærstu harmónikkukeppnir í heimi, þar á meðal World Accordion Trophy (CMA), sem hann hefur unnið í tvígang, Coupe Mondiale of Accordion (CIA), International Castelfidardo keppnina og Okud Istra International keppnina.Þrátt fyrir ungan aldur hefur João Barradas það á ferilsskránni að hafa fyrstur allra harmónikkuleikara flutt einleikstónleika í nokkrum stærstu tónleikasölum heims, þar á meðal í Wiener Konzerthaus, Tonhalle Maag Zurich og Sage Gasteshead.
Tilhliðar við farsælan feril sem klassískur harmónikkuleikari á João Barradas í nógu að snúast sem jazzharmónikkuleikari og hann hefur þegar komið fram á öllum helstu jazztónlistarhátíðum og jazztónlistarklúbbum heims. Það er því sérstakt fagnaðarefni að fá líka tækifæri til þess að hlýða á jazzharmóníkuleik Barradas, með sérskipaðri hljómsveit Jazzklúbbins Múlans, næstkomandi föstudagskvöld, 18. febrúar.
João Barradas hlaut titilinn ECHO Rising Star 2019/2020 hjá European Concert Hall Organization og í ár tilnefndi BBC Music magazine hann sem eina af rísandi stjörnum klassískrar tónlistar.
Næstu listamenn Heimssviðsins eru:
4-5. mars: ARIS kvartettinn
, frá Þýskalandi: Kvartetttónleikar og masterclass í kammertónlist.23. mars: Johannes Piirto
, píanóleikari frá Finnlandi: Tónleikar með áherslu á skandinavíska tónlist og eigin tónsmíðar. Masterklass fyrir nemendur Listaháskóla Íslands.6. apríl: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
, sópran. Tónleikar með myndvörpun og dansi.11. maí: Dúó Edda, fiðla og selló: Tónleikar með kraftmiklum tónsmíðum fyrir fiðlu og selló. Dúóið ætlar að taka flott kynningarmyndbönd í Eldborg samhliða tónleikaundirbúningi.
Ekki missa af þessari einstöku tónleikaröð -
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA HÉR
.