24. desember 2021

Hátíðarkveðja frá Hörpu

Hjartans óskir um gleðileg jól og bestu þakkir fyrir samferðina á árinu 2021.

Jólamynd 2021

Hjartans óskir um gleðileg jól og bestu þakkir fyrir samferðina á árinu 2021. Við vonum að nýja árið færi okkur öllum gæfu og gengi og hlökkum til að hittast aftur í Hörpu.

Harpa fagnaði 10 ára afmæli á árinu og af því tilefni sömdu 10 ára börn [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop, sem einnig var flutt af 10 ára fríðum flokki barna. Þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður voru haldnir mörg hundruð glæsilegir tónleikar, ráðstefnur og aðrir viðburðir í Hörpu. Nokkrir af hápunktunum í afmælisdagskránni voru 12 ný ljósverk á glerhjúpinn eftir Ólaf Elíasson, heimsókn Concertgebouworkest - einnar bestu sinfóníuhljómsveitar heims í nóvember, vígsla Víkings Heiðars Ólafssonar á nýjum flygli og tónleikaröð Bjarkar.

Spennandi breytingar voru gerðar á þjónustu og fyrirkomulagi á jarðhæð hússins sem gerir Hörpu að enn skemmtilegri áfangastað.

Harpa er húsið okkar allra og einnig hús fjölskyldunnar. Í byrjun nýs árs verður nýtt gagnvirkt barnarými opnað sem helgað er tónlist, upplifun og uppgötvun.

Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.

Í tilefni af afmælinu gerðum við samantekt um fjölbreytta starfsemi í Hörpu síðustu 10 árin. [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop til að horfa.

Fréttir