1. júlí 2026
Harpa hlýtur Travelers' Choice viðurkenningu sjötta árið í röð
Í ár hlaut Harpa aftur Travelers' Choice viðurkenningu frá Tripadvisor, sjötta árið í röð. Viðurkenningin er veitt þeim stöðum sem raðast í efstu 10% skráðra áfangastaða á Tripadvisor, byggt á umsögnum og einkunnum gesta víðs vegar að úr heiminum.

Viðurkenningin endurspeglar góða upplifun gesta af Hörpu og staðfestir enn á ný stöðu hússins sem eins helsta menningar- og kennileitis landsins. Á hverju ári heimsækja hundruð þúsunda gesta Hörpu til að njóta tónleika, viðburða, arkitektúrs hússins, veitingastaða, sýninga og fjölbreyttrar upplifunar.
„Það er afar ánægjulegt að sjá gesti Hörpu meta upplifun sína með þessum hætti. Við leggjum ríka áherslu á að taka vel á móti öllum sem heimsækja húsið, hvort sem það er vegna tónleika, ráðstefnu, leiðsagnar eða einfaldlega til að njóta hússins sjálfs. Þessi viðurkenning er fyrst og fremst hrós til alls þess öfluga starfsfólks sem leggur sitt af mörkum á hverjum degi til að skapa eftirminnilega upplifun,“ segir Þórunn Hannesdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Hörpu.
Harpa hefur verið á árlegum verðlaunalista Tripadvisor frá árinu 2015. Fyrstu árin hlaut húsið Certificate of Excellence viðurkenninguna en frá árinu 2020 hefur Harpa hlotið Travelers' Choice viðurkenninguna ár hvert.
Á síðustu misserum hefur upplifun gesta í Hörpu orðið enn fjölbreyttari með nýjum sýningum og afþreyingu í húsinu. Þar má nefna fjölskylduvænar upplifanir á borð við eldgosasýninguna Volcano Express sem opnaði árið 2025, og í sumar opnar gagnvirka sýningin Heimur íslenskrar tónlistar, sem leiðir gesti í gegnum sögu íslenskrar tónlistar á lifandi og skemmtilegan hátt. Þessar viðbætur gera heimsókn í Hörpu enn fjölbreyttari og styrkja stöðu hússins sem lifandi menningar- og upplifunaráfangastaðar.
Við þökkum öllum þeim sem hafa heimsótt Hörpu og gefið sér tíma til að deila upplifun sinni á Tripadvisor. Umsagnir gesta skipta miklu máli og eiga stóran þátt í þessari viðurkenningu.