11. ágúst 2026

Harpa býður heim á Menningarnótt

Harpa fagnar 15 ára afmæli sínu á Menningarnótt og býður af því tilefni upp á veglega viðburðadagskrá frá 12 – 18. Dagskráin teygir sig um allt hús og út á Hörputorg en alls verða um 40 fjölbreyttir viðburðir í boði fyrir unga sem aldna. Dagskráin nær hápunkti sínum klukkan 18 þegar Ragnheiður Gröndal og karlakórinn Fóstbræður leiða samsöng í alrými Hörpu.

Woman with wavy brown hair looking up thoughtfully, hands clasped, in a black velvet dress against a teal background.

Sjóðheit salsatónlist og sólmyrkvaleikar

Tónlistin skipar veglegan sess í dagskrá Menningarnætur í Hörpu og fjölbreytnin ræður þar ríkjum. Gestir geta dillað sér við sjóðheita salsatónlist og stórsveitarsveiflu, hlýtt á litskrúðuga kórtónlist og kammermúsík og drukkið í sig tregablandinn blús, svo fátt eitt sé nefnt. Á meðal flytjenda eru kórarnir Fóstbræður og Huldur, Stórsveit Reykjavíkur ásamt Kristjönu Stefánsdóttur og salsasveitin Barrio 27.

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður til Sólmyrkvahátíðar í Eldborg ásamt Sævari Helga Bragasyni, Stjörnu-Sævari. Þar verða sól og máni í aðalhlutverki í tali og tónum og ekki er ósennilegt að nýafstaðinn almyrkva á sólu beri á góma.

Sólmyrkvinn ræður einnig ríkjum í Norðurljósum. Þar flytja Krakkakór ÞYKJÓ ásamt hljómsveit, glæný lög og ljóð eftir börn frá gervöllum Vestfjörðum, innblásin af „stystu nótt í heimi" en kynnir á tónleikunum verður Ingibjörg Fríða sem ætlar að gægjast í sína sívinsælu og fróðlegu Þjóðsögukistu.

Blúsfélag Reykjavíkur gengst fyrir glæsilegri blúshátíð í Flóa og í Kaldalóni verður bæði boðið upp á færeyska tónlistarveislu og tilraunakennds kórprógrams með þátttöku trommukórs, tölvukórs og flautukórsins viibrur.

Dans dans dans

Dansinn mun með sanni duna í Hörpu á Menningarnótt. Dönsurum úr Íslenska dansflokknum bregður fyrir í óvæntum og lifandi innskotum víðs vegar um húsið og dansarar frá Dansi Brynju Péturs flytur kraftmikið street dansatriði á Hörputorgi. Í Hörpuhorni geta börn og fjölskyldur stigið Dans ársins undir leiðsögn Ingu Marenar Rúnarsdóttur og slegið verður upp seiðandi tangóballi í Flóa ásamt Bryndísi Halldórsdóttur og Hany Hadya. Gleðisveitin Hnokkar verður svo á vappi um húsið og slær upp sveifluballi á ýmsum stöðum ásamt Sveiflustöðinni.

Notaleg dagskrá fyrir alla fjölskylduna

Börn og fjölskyldur fá að njóta alls kyns vandaðra viðburða í Hörpu á Menningarnótt. Bambaló leiðir notalega tónlistarstund fyrir yngstu börnin í Hörpuhorni. Korda Samfónía, ein óhefðbundnasta hljómsveit landsins, býður til lagasmiðju og samsöngs og hægt verður að hreiðra um sig með hönnunarteyminu ÞYKJÓ víðs vegar á jarðhæð Hörpu. Þar verður meðal annars afmæliskórónusmiðja og tilraunastofur þar sem tónlistarkonan sóley ásamt ÞYKJÓ býður börnum og fjölskyldum inn í heim dýratóna og fuglasöngs.

ÞYKJÓ á jafnframt veg og vanda að hinu einstaka upplifunarrými Hljóðhimnar á jarðhæð Hörpu sem verður að sjálfsögðu opiðá Menningarnótt.

Maxímús músíkús verður svo á ferð og flugi um húsið í sérstöku tyllidagaskapi.

Litríkt karnival á Hörputorgi

MÁ Hörputorgi verður mikið um dýrðir en að baki dagskránni stendur Landsbankinn auk Hörpu. Hinn árvissi og stórskemmtilegi lúðrasveitabardagi verður háður með tilheyrandi mútum, svikum og frændhygli og hin sívinsæla bátasmiðja Memmm verður einnig á sínum stað á Hörputorgi þar sem hægt verður smíða sinn eigin bát og láta hann fljóta á tjörnunum fyrir framan Hörpu.

Er þá fjölmargt ótalið en hægt er að kynna sér dagskrána inni á harpa.is/menningarnott.

Menningarnótt í Hörpu er ávallt mikill hátíðisdagur og er það mikil tilhlökkun að fylla húsið af lífi, söng og glöðum gestum á þessum dásemdardegi.

Við hlökkum til að fagna Menningarnótt með ykkur!

Fréttir