14. mars 2023

Afmæl­is­hátíð Hljóð­himna

Boðið verður upp á glæsilega dagskrá. Aðgangur ókeypis og öll velkomin.

Hljóðhimnar, upplifunarrými fyrir börn og fjölskyldur, í Hörpu eru 1 árs í mars og verður haldið upp á það með afmælishátíð laugardaginn 18. mars. Boðið verður upp á glæsilega dagskrá í húsinu, tónlistarleiki og kórónugerð og heiðursgesturinn Maximús Músíkús heilsar upp á afmælisgesti.  

Dagskrá

Vísa/Stemma - 11:00-13:00 Kórónugerð með ÞYKJÓ

Hörpuhorn - 11:30-12:00 Klapp klapp stapp stapp smiðja með Sigga&Ingibjörgu

Opin svæði/Hnoss/Hljóðhimnar - 12:00 Maxímús Músíkús heilsar upp á afmælisgesti

Hörpuhorn - 13:00-13:30 Klapp, klapp, stapp stapp smiðja með Sigga&Ingibjörgu

Opin svæði/Hnoss/Hljóðhimnar - 13:00 Maxímús Músíkús heilsar upp á afmælisgesti 

Barnabröns á Hnoss

Hnoss restaurant og bar verður með sérstakan barnabröns á meðan á afmælishátíðinni stendur, þar sem m.a. verður súkkulaðibrunnur með ávöxtum. Mælt er með því að bóka borð fyrirfram á dineout.is/hnoss. Börn 0-5 ára borða frítt, 6-12 greiða 2.400 kr og fullorðnir 4.900 kr.

„Við verðum með skemmtilega, litríka og næringarríka rétti fyrir alla fjölskylduna, með sérstakri áherslu á börn. Þá verðum við með súkkulaðibrunn og ávexti til að dýfa í brunninn, sem vakti mikla lukku meðal barna sem komu í jólabrönsinn þegar við buðum upp á súkkulaðibrunninn."

Rammagerðin

Rammagerðin tekur einnig þátt í afmælishátíðinni og býður upp á 20% afslátt af barnabolum og samfellum úr Reykjavíkurlínunni „Ó Reykjavík“.

Kórónugerð

Hönnuðir ÞYKJÓ sem stóðu að hönnun Hljóðhimna aðstoða afmælisgesti við að búa til sína eigin kórónu til að auka hátíðarstemmninguna í Hörpu.

Klapp klapp stapp stapp smiðja Tónlistarteymið Siggi&Ingibjörg leiða afmælisgesti í tónlistarleikjum og einu hljóðfærin sem við þurfum erum við sjálf! Klapp, stapp og söngur í um það bil hálftíma langri smiðju þar sem allir geta tekið þátt.

Hljóðhimnar eru opnir eins og venjulega og býðst afmælisgestum að flæða frjálst á milli staða.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Fréttir