16. júní 2025

Mikil hrifning á Revolta. Ógleymanleg sýning í Eldborg

Listafólkinu í Geneva Camerata var fagnað innilega með standandi lófataki og húrrahrópum að lokinni magnaðri sýningu í Eldborg í Hörpu. Revolta er einstaklega hugmyndarík og frumleg sýning þar sem fléttast saman tónlist, dans og ljós – og þar sem hljóðfæraleikarar hljómsveitarinnar stíga sjálfir fram sem hluti af sviðsetningunni með hreyfingum og dansi.

a woman is holding a double bass in front of a group of musicians on a stage .

Sinfóníuhljómsveitin Geneva Camerata samanstendur af framúrskarandi hljóðfæraleikurum víðsvegar að úr heiminum, sem í sýningunni fluttu verkið Battle Zone eftir Alexandre Mastrangelo ásamt fimmtu sinfóníu Dmitri Shostakovich. Flutningurinn var bæði tæknilega nákvæmur og óvenjulega líkamlegur þar sem hljóðfæraleikararnir spiluðu án nótna og dönsuðu með í verkinu og sköpuðu þannig heildarupplifunin sem var engri lík.

Ásamt hljómsveitinni komu fram hipp-hopp og krumpdansararnir Melissa, Dexter, Hendrickx og Grichka sem hófu óvænta og kraftmikla dansröð á sviðinu. Sviðsetningin var í höndum Grichka og Kader Attou og sameinaði ólík listform á áhrifaríkan hátt. Í bland við glæsilega lýsingu og sjónræna útfærslu skapaðist kvöldstund þar sem taktur, orka og fágun fóru saman og mörkuðu djúp spor í huga gesta.

Tónleikarnir voru liður í tónleikaferð Geneva Camerata um Evrópu og í fyrsta sinn sem hljómsveitin kom fram hér á landi. Sýningin í Eldborg var haldin á vegum Hörpustrengja og liður í dagskrárgerð Hörpu.

Kvöldið verður lengi í minnum haft – ekki aðeins fyrir glæsilegan flutning heldur fyrir nýja sýn á möguleika klassískrar tónlistar í samtali við dans og sviðslistir.

Fréttir