börn og fjölskyldan, ókeypis viðburður

Fjöl­skyldu­dag­skrá Hörpu: Lærðu pólska og úkraínska leiki!

Verð

0 kr

Næsti viðburður

laugardagur 1. júní - 10:00

Salur

Silfurberg

Listahátíð í Reykjavík og Harpa bjóða börnum á aldinum 6-9 ára upp á stórskemmtilegt námskeið þar sem hljómsveitin DAGADANA kennir pólska og úkraínska leiki. 

Smiðjan fer fram í Silfurbergi í Hörpu, laugardaginn 1. júní milli 10:00 - 11:00. 

DAGADANA er heimsþekkt þjóðlagasveit sem vill stuðla að því að fólk hvarvetna úr heiminum geti komið saman í krafti tónlistarinnar. Hér kenna þau krökkum fyndna, fjöruga og fallega leiki. 

Þátttaka er ókeypis, en nauðsynlegt að skrá sig hér. 
Fullorðnir eru velkomnir að taka þátt með börnum sínum, en þó ekki fleiri en tveir á hvert skráð barn. 

Aðgengi og aldur

- Smiðjan á fer fram á ensku og íslensku, en einnig hægt að fá útskýringar og svör við spurningum á pólsku og úkraínsku. 

- Smiðjan er ætluð börnum á aldrinum 6-9 ára (fædd 2015-2018)

- Smiðjan fer fram í rúmgóðum sal á annarri hæð, með lyftuaðgengi og sléttu gólfi

- Nánari upplýsingar um heimsóknir í Hörpu og aðgengismál má finna hér.

Við viljum upplýsa gesti um að ljósmyndari gæti verið viðstaddur viðburðinn. Ef foreldrar eða forráðamenn vilja ekki að myndir af börnum þeirra birtist í umfjöllun um viðburðinn á miðlum Hörpu eða Listahátíðar í Reykjavík þá biðjum við ykkur vinsamlegast um að láta starfsfólk eða ljósmyndarann vita á staðnum eða í gegnum netfangið markadsdeild@harpa.is.


Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

Dagskrá

laugardagur 1. júní - 10:00

Silfurberg

Silfurberg er helsti ráðstefnusalur Hörpu og er tilvalinn fyrir hvers kyns viðburði, veislur, sýningar eða tónleika.