skoðunarferð

Skoð­un­ar­ferð um Hörpu

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

5.200 kr

Tímabil

20. maí - 31. ágúst

Salur

Harpa

Skoðunarferð um Hörpu er ógleymanleg upplifun.
Leiðsögumenn segja þér allt um hönnunina, hinn einstaka glerhjúp Ólafs Elíassonar og allt hitt sem gerir Hörpu að því einstaka mannvirki sem hún er.

Skoðunarferðin tekur 45-60 mínútur og fer fram á ensku. Verð fyrir ferðina er 5.200 krónur og frítt er fyrir 12 ára og yngri. Námsmenn, eldri borgarar og öryrkjar greiða 4.400 krónur.
Miðar með afslætti fást í miðasölu á jarðhæð Hörpu

Aðgangur fyrir hreyfihamlaða
Skoðunarferðin er aðgengileg að öllu leyti fyrir viðskiptavini sem notast við hjólastól eða eiga erfitt með gang.

Leiðsögumenn Hörpu
Jara Hilmarsdóttir er klassískt menntuð söngkona. Hún er nýútskrifuð með bakkalárgráðu frá tónlistarháskolanum í Köln, Þýskalandi, en skólinn er stærsti tónlistarháskóli Evrópu og var Jara ein af þremur sem tekin voru inn á fyrsta ár til bachelor gráðu í klassískum söng haustið 2018. Hún hefur komið fram sem einsöngvari við fjölda tilefna bæði á Íslandi og erlendis og það er gaman að segja frá því að hún hefur sungið í öllum sölum Hörpu, hvort sem það var með kór eða sem einsöngvari.

Athugið að ferðir geta fallið niður með stuttum fyrirvara. 

Nánari upplýsingar

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir:

A

5.200 kr.

Dagskrá