raftónlist, raftónlist, hip hop og rapp, rokk og popp, tónlist
Yung Lean í Eldborg
Verð
5.990 - 14.990 kr
Næsti viðburður
föstudagur 25. október - 20:00
Salur
Eldborg
Yung Lean í Eldborg
Orka í samstarfi við Garcia Events, Nova, Domino’s, Joe & the Juice og Tuborg kynna með stolti:
Yung Lean í Eldborg, Hörpu þann 25.Október.
Forsala miða hefst fimmtudaginn 11. apríl í Nova appinu og fyrir áskrifendur póstlista Garcia Events.
Almenn miðasala hefst laugardaginn 13. apríl kl 12:00 á harpa.is
Jonatan Leandoer, betur þekktur sem Yung Lean er af mörgum talinn einn áhrifamesti hip hop tónlistarmaður 21. aldarinnar. Eftir að hafa skotist upp á stjörnuhimininn árið 2013, þá aðeins 17 ára, með laginu “Ginseng Strip 2002”, hefur hann gefið út feykivinsælar plötur á borð við Unknown Memory, Warlord og Stranger þar sem finna má lög á borð við “Yoshi City”, “Red Bottom Sky” og “Agony” svo einhver séu nefnd auk fjölmargra annarra sem notið hafa gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Meðal samstarfsfólks hans á undanförnum árum má nefna Frank Ocean, Travis Scott, Skrillex og FKA Twigs.
Jonatan er óumdeildur frumkvöðull í tónlistinni sem hefur ásamt samstarfsmönnum sínum oft kenndum við Sad Boys frá upphafi ferils síns komið hlustendum á óvart með sinni einskæru snilld. Yung Lean hefur áður heimsótt Íslands og spilað í Hörpu og Kaplakrika við frábærar undirtektir. Gestir á tónleikunum í Eldborg mega búast við að sjá einn af risum evrópsks tónlistarlífs í fantaformi, eitthvað sem enginn tónlistarunnandi má láta framhjá sér fara.
Athugið að takmarkað magn miða er í boði.
18 ára aldurstakmark er á tónleikana
Skráning á póstlista Garcia Events
Viðburðahaldari
Garcia Events
Miðaverð er sem hér segir:
A
13.990 kr.
B
11.990 kr.
C
9.990 kr.
D
7.990 kr.
X
14.990 kr.
E
5.990 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu