rokk og popp, tónlist
Nýdönsk - Í raun og veru
Verð
4.990 - 14.990 kr
Næsti viðburður
laugardagur 21. september - 21:00
Salur
Eldborg
Nýdönsk – Í raun og veru
Forsala fyrir póstlista Nýdönk hefst 22.apríl!
Skráðu þig á póstlistann og náðu bestu sætunum
Hljómsveitin Nýdönsk heldur sína árlegu stórtónleika í Eldborg þann 21.
september og í Hofi, Akureyri þann 28. september.
Fáar íslenskar hljómsveitir hafa sent frá sér jafn marga smelli og nægir þar að nefna lög eins og Hjálpaðu mér upp, Flugvélar, Frelsið, Alelda og Fram á nótt sem dæmi. Áhorfendur geta bókað örugga og góða skemmtun þegar þessi hljómsveit telur í enda hafa kannanir sýnt að fáum listamönnum er betur treystandi fyrir líflegri sviðsframkomu, útgeislun og kraftmiklum hljóðfæraleik.
Hljómsveitina skipa þeir:
Daníel Ágúst Haraldsson
Björn Jörundur Friðbjörnsson,
Jón Ólafsson
Ólafur Hólm
Stefán Hjörleifsson.
Þeim til aðstoðar verða Ingi Skúlason og Guðmundur Pétursson.
Á tímum gervigreindar þykir mikilsvert að geta séð alvöru fólk spila á hljóðfærin sín og Nýdönsk er svo sannarlega raunveruleg og hefur verið það í áratugi.
Umsjón: Dægurflugan
Viðburðahaldari
Dægurflugan
Miðaverð er sem hér segir:
A
13.990 kr.
B
11.990 kr.
C
9.990 kr.
D
7.990 kr.
X
14.990 kr.
E
4.990 kr.
Dagskrá
laugardagur 21. september - 21:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu