Börn og Fjölskyldan, Leikhús, Sýning

Price
4.950 kr
Period
8th February - 3rd May
Venue
Kaldalón
Karíus og Baktus
Tanntröllin
Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda
notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns
sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra
um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um byggingaframkvæmdir í munninum. En
þegar þeir gerast of aðgangsharðir verður Jens að fara til tannlæknis sem setur
framkvæmdirnar í uppnám og félagarnir þurfa að leita á nýjar slóðir.
Karíus
og Baktus er sígilt ævintýri eftir Thorbjörn Egner. Sagan kom fyrst út á bók
árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu prakkarar notið mikilla vinsælda meðal
barna víða um heiminn.
Nú
má sjá þessa sígildu prakkara í fallegu leikhúsi sem sett hefur verið upp í
Kaldalóni í Hörpu en það er miklu skemmtilegra að kíkja á þá þar en að hafa
þá í munninum á sér. Karíus og Baktus er hress og skemmtileg sýning fyrir alla
aldurshópa og er tilvalin fyrir unga krakka sem eru að kynnast töfrum
leikhússins í fyrsta skipti.
Sýningin er um 45 mínútur að lengd og án hlés.
Leikarar: Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Leikstjórn: Sara Marti og Agnes Wild
Leikmynd og búningar: Steinunn Marta Önnudóttir
Tónlist: Stefán Örn Gunnlaugsson
Myndband: Steinar Júlíusson
Leikmunir: Eva Björg Harðardóttir
Sýningarleyrsla: Óðinn Ragnarsson
Framleiðslustjórn: Jón Þ. Kristjansson
Promoter
Daldrandi
Ticket prices are
A
4.950 kr.
What's on
Sunday 8. February - 15:00
Saturday 28. February - 13:00
Saturday 25. April - 13:00
Kaldalón auditorium is especially well suited for all types of music, as well as for smaller conferences, meetings and lectures.

Upcoming events in Harpa